Bjargið fær rausnarlega gjöf
Myndir frá Bjarginu.

Bjargið fékk á dögunum veglega gjöf frá Kvenfélagi Landakirkju þegar félagið afhenti nýtt skynjunartæki sem ætlað er að efla hreyfingu og örva skynjun hjá eldra fólki.

Kvenfélagið safnaði fyrir tækinu með það að markmiði að styðja við velferð og lífsgæði. Um er að ræða öflugt hjálpartæki sem mun nýtast vel í daglegu starfi og stuðla að aukinni virkni, jafnvægi og örvun hjá notendum.

Að sögn starfsfólks á Bjarginu mun tækið koma að mjög góðum notum í daglegu starfi og styrkja enn frekar þá þjónustu og umönnun sem þar er veitt.

Starfsfólk Bjargs eru afar þakklát fyrir þessa rausnarlegu gjöf og það óeigingjarna og mikilvæga starf sem Kvenfélag Landakirkju vinnur í þágu samfélagsins.

Nýjustu fréttir

Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.