Emil skoraði í sigri Íslands á Eistum
Emil Gautason.

Emil Gautason, leikmaður ÍBV í fótbolta, skoraði í 5-1 sigri u-16 ára landsliðs Íslands á Eistlandi í gærkvöld, er liðin mættust á Þróunarmóti UEFA í Færeyjum. 

Emil skoraði fimmta mark Íslands í leiknum þegar hann átti frábært hlaup í gegnum vörn Eista og skoraði með fyrstu snertingu í fjær hornið, óverjandi fyrir markvörðinn.

Emil átti einnig stóran þátt í fjórða marki Íslands í leiknum þegar hann lét boltann renna í gegnum klofið á sér áður en boltinn barst á markaskorarann Emil Eldar í uppbyggingu sóknarinnar. 

Ísland mætir Bosníu og Herzegóvínu í næsta leik sínum á mótinu á sunnudag.

Nýjustu fréttir

Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.