Líflegur laugardagsmorgunn – fullfermi og loðnuvinnsla í fullum gangi
Landað úr Drangavík í morgun. Ljósmynd/Vinnslustöðin.

Það var líflegt um að litast á athafnasvæði Vinnslustöðvarinnar í morgun. Drangavík VE kom til hafnar með fullfermi. Löndun hófst fljótlega eftir komu skipsins, að því er segir í færslu á facebook-síðu Vinnslustöðvarinnar.

Jón Ólafsson var skipstjóri í veiðiferðinni sem gekk vel, þrátt fyrir að skipið hafi lent í brasi fyrr í vikunni. Á mánudag þurfti að draga skipið til hafnar vegna vandamála, en að sögn skipstjóra reyndist allt í lagi að lokinni yfirferð og viðgerð. Haldið var aftur til veiða á miðvikudag. Veitt var við Ingólfshöfða og var afli góður, einkum þorskur og ýsa.

Samhliða komu Drangavíkur stendur loðnuvinnsla yfir hjá Vinnslustöðinni. Gullberg VE er að landa loðnu sem fer í heilfrystingu og fór Huginn VE til veiða í morgun til að sækja síðasta skammt loðnu sem fer í þá vinnslu. Að því loknu tekur við hrognafrysting. Sindri Viðarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs hjá Vinnslustöðinni, segir stefnt að því að hún hefjist fyrir miðja næstu viku.

Sjá má myndasyrpu frá í morgun á facebókarsíðu Vinnslustöðvarinnar.

Nýjustu fréttir

Það sem vikan skilur eftir sig
Guðrún telur að stutt geti verið í kosningar
Lundaballið haldið í Höllinni – myndir
Gjaldskrá Frístundar til endurskoðunar
Vilja setja aldursmörk á samfélagsmiðla – ábyrgðin yrði hjá foreldrum
ÍBV tapaði gegn Breiðablik á Hásteinsvelli
Fjölbreytt tómstundastarf kynnt í Íþróttamiðstöðinni
94 bjargdúfur felldar – aðgerðum ekki lokið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.