Veðrið hefur þannig sveiflast úr austan- og suðaustanáttum yfir í vestan- og suðvestanátt og að lokum í norðanátt. Þetta er kunnuglegur gangur þegar hver lægðin á fætur annarri gengur yfir landið og veldur ofsaveðri á köflum. Sem dæmi lá allt flug, innanlands og millilandaflug, niðri og ófært var á sjó og landi frá fimmtudegi fram á laugardag. Þessu hefur fylgt mikið brim sem hefur barið linnulaust á Vestmannaeyjum síðustu daga.
Margir hafa fangað þessi náttúruöfl á myndum og deilt þeim á samfélagsmiðlum. Myndirnar eru stórkostlegar, en jafnframt ógnvekjandi, enda krafturinn mikill. Sigurgeir Brynjar, „Binni í Vinnslustöðinni“, tók til dæmis áhrifamikla mynd í Klaufinni. „Get ekki stillt mig um að sýna ykkur Brand og Álsey í briminu, séð úr Klaufinni í morgun,“ segir hann — og myndin talar sínu máli.

Sama má segja um mynd sem Pétur Steingrímsson birti fyrir nokkrum dögum. „Það var stórkostlegt að ganga Klaufina, Höfðavíkina og aðeins yfir í Brimurðina í dag og fylgjast með briminu og hlusta á brimhljóðið. Það er langt síðan það hefur brimað svona mikið. Ég hef oft sagt að það sé líklega betra en tími hjá sálfræðingi að ganga um fallega náttúru landsins — hvað þá að setjast niður í fjöru og njóta. Við Bubbi elskum þetta,“ segir Pétur.

Óskar Elíasson birti einnig myndir úr göngutúrum sínum í mars. Með leyfi hans birtum við mynd sem sýnir rof í varnargarði á Eiði og stórgrýti sem hefur borist upp á land.
Samkvæmt Veðurstofunni mun draga úr bæði vindi og úrkomu þegar líður á daginn. Síðdegis tekur við vestlæg átt, 5 til 15 m/s, með éljum víða um land. Frost verður almennt á bilinu 0 til 5 stig.
Á morgun gengur í austanátt, 15 til 23 m/s, með snjókomu sem hefst sunnanlands. Við suðurströndina má þó búast við slyddu eða rigningu síðdegis og hita yfir frostmarki. Um kvöldið dregur úr vindi og úrkomu sunnantil.
Þriðjudagur:
Norðanátt 13 til 20 m/s með snjókomu eða éljum víða um land, en úrkomulítið sunnanlands. Frost 2 til 7 stig. Vindur minnkar þegar líður á daginn.
Miðvikudagur:
Norðvestlæg átt, víða 3 til 10 m/s, en allt að 15 m/s við austurströndina. Él, einkum nærri ströndum, en bjartara sunnanlands. Frost 3 til 10 stig.
Fimmtudagur:
Suðaustanhvassviðri með snjókomu eða slyddu og hækkandi hita. Síðar lægir vindur og rigning tekur við við suður- og vesturströndina.
Föstudagur:
Suðvestlæg átt með éljum, en að mestu þurrt austanlands. Hiti nálægt frostmarki.
Laugardagur:
Suðaustlæg átt með rigningu eða slyddu og áframhaldandi hlýindum.
Spáin var gefin út klukkan 07:55 þann 22. mars 2026 og gildir til hádegis 29. mars.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.