90 milljónir og barn á leiðinni
Stóri vinningurinn kemur sér svo sannarlega vel.

Það voru verðandi foreldrar sem hrepptu síðasta, en fjarri því sísta, lottópottinn á liðnu ári. Þau voru ein með allar tölurnar réttar og fengu rúmar 90,2 skattfrjálsar milljónir í sinn hlut. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá.

Stóri vinningurinn kemur sér svo sannarlega vel. Ekki aðeins vegna allra jólareikninganna heldur vegna þess að fólkið, sem er á fertugsaldri, er nýlega búið að selja íbúðina sína og er einmitt að leita að rúmbetra húsnæði fyrir stækkandi fjölskyldu.

Í samtali við Íslenska getspá sögðust þau hafa haft lúmska tilfinningu um að þetta væri þeirra dagur, tóku upp símana sína og keyptu bæði miða í lottóappinu. Hann var með vinningsmiðann sem innihélt sjö raðir og valdi hann tölurnar sjálfur. Kostaði miðinn 1.050 krónur. Þegar þau fréttu að vinningurinn hefði komið á miða sem var keyptur í appinu urðu þau bæði furðulega viss um að einmitt þau hefðu unnið, en greindi þó aðeins á um hversu mikil geðshræringin var í raun þegar góðu fréttirnar voru staðfestar. Eins og áður sagði kemur stóri vinningurinn sér einstaklega vel en Íslensk getspá hefur einnig boðið vinningshöfunum ókeypis fjármálaráðgjöf.

Starfsfólk Getspár/Getrauna óskar vinningshafanum innilega til hamingju og þakkar um leið veittan stuðning sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk, sem og íþrótta- og ungmennafélögin í landinu þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó, seghir í tilkynningunni.

Nýjustu fréttir

ÍBV með mikilvægan sigur gegn Fram
Hlynur bætti Íslandsmetið í hálfmaraþoni
Líflegt spjall á N1 við Friðarhöfn
Tjaldsvæði opnað inni í Herjólfshöll á Þjóðhátíð
Örlygur Helgi ,,fyrst og fremst heiður”
Mannabreytingar í nefndum bæjarins eftir flokkaskipti
Eyjamenn sækja Fram heim
Á rauðu ljósi í Reykjavík
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.