Andspænis ógnum náttúrunnar erum við mannfólkið afskaplega smá. Þegar við stöndum frammi fyrir erfiðleikum og áföllum reynir á þrautseigju okkur og styrk. Þá getur trúin verið það haldreipi sem við þörfnumst til að komast í gegnum það sem að höndum ber. Þetta þekkja Eyjamenn vel sem margsinnis hafa í gegnum tíðina þurft að takast á við samfélagsleg áföll; Tyrkjarán, sjóskaða og eldgos.
Þjóðkirkjan er stór og sterk stofnun með tækifæri til að taka höndum saman við aðra aðila í samfélaginu til að vinna að góðum málum. Ég fullyrði að engin hreyfing í landinu býr að eins stórum og virkum hópi fólks í sínum röðum nema ef vera skyldi björgunarsveitirnar, sem við eigum svo margt að þakka. Þegar prestar á Reykjanesi kölluðu saman Grindvíkinga í Hallgrímskirkju eftir rýmingu bæjarins í nóvember lét forsætisráðherra þessa skoðun í ljósi og sagði: „Þetta getur enginn gert nema Þjóðkirkjan.“ Þetta ættum við kirkjunnar fólk að muna betur og taka til okkar og vera stolt af.
Nú stendur biskupskjör fyrir dyrum og því vil ég nota þetta tækifæri að segja þér sem þetta les, í örstuttu máli frá þeirri sýn sem ég hef á hlutverk biskups Íslands.
Verði ég kjörin biskup Íslands, mun ég:
Biskup Íslands er fyrst og fremst trúarlegur leiðtogi, sem prédikar og leiðir bænalíf og kærleiksþjónustu þess samfélags sem þjóðkirkjan er. Biskup á að uppörva vígða þjóna vítt og breitt um landið svo þeir geti boðað fagnaðarerindið og miðlað trúnni á þann hátt að samtíminn skilji.
Biskup þarf að bera gæfu til að eiga gott og uppbyggilegt samstarf við aðra leiðtoga þjóðkirkjunnar. Örugg boðun í trú og gleði, sátt og samlyndi, með vandaðri stjórnun, verður mín nálgun.
Elínborg Sturludóttir er frá Snæfellsnesi og hefur þjónað sem prestur í Grundarfirði, Borgarfirði og nú við Dómkirkjuna í Reykjavík. Hún er í framboði til biskups Íslands, kjör fer fram 11. – 16. apríl nk. Sjá https://kirkjan.is
Elínborg Sturludóttir, dómkirkjuprestur.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.