Áætlaður kostnaður við Land-Eyjahöfn er um 3.5 milljarðar króna
Guðrún Erlingsdóttir varaþingmaður Suðurkjördæmis, beindi fyrirspurn til samgönguráðherra, um framkvæmdir við Land-Eyjahöfn Hún spurði hvort ráðherrann hyggðist tryggja nægt fé til að ljúka framkvæmdum við Land-Eyjahöfn þannig að siglingar Herjólfs geti hafist þangað í júlí 2010.