Abel glím­ir við al­var­leg veik­indi
Abel Dhaira, aðal­markvörður knatt­spyrnuliðs ÍBV, á við al­var­leg veik­indi að stríða og er ótt­ast að jafn­vel sé um krabba­mein að ræða.
�?essi 28 ára gamli �?gandamaður, sem lék fyrst með ÍBV árið 2011, kom til Íslands á laug­ar­dag­inn eft­ir að hafa glímt við veik­ind­in í heimalandi sínu þar sem hann hef­ur dval­ist eft­ir að síðustu leiktíð lauk.
�??Abel er veik­ur, það er eng­in laun­ung á því. Við ákváðum því að taka hann til Íslands og hann er und­ir lækn­is­hönd­um og í rann­sókn­um þessa daga. Meira vit­um við ekki í bili. Við bíðum eft­ir niður­stöðum úr þess­um rann­sókn­um,�?? sagði Bjarni Jó­hanns­son, sem tók við þjálf­un ÍBV í októ­ber. Aðspurður hvort um krabba­mein gæti verið að ræða sagði Bjarni það ekki ljóst á þess­ari stundu.
�??Maður veit aldrei. �?etta er korn­ung­ur maður og maður vill ekki trúa því,�?? sagði Bjarni.
�??�?ví miður höf­um við ekki fengið nægi­lega mikl­ar upp­lýs­ing­ar frá �?ganda. �?að er ekk­ert sam­ræmi í einu né neinu og við vit­um því lítið um hvað hef­ur gerst. En veik­ind­in eru þess eðlis að við ákváðum að taka hann til lands­ins, til að von­andi hjálpa hon­um. Maður veit svo sem ekki hvort heil­brigðis­kerfið er betra hérna en í �?ganda, en við stóluðum á að það væri held­ur skárra hér,�?? sagði Bjarni.
mbl.is greindi frá en nánari umfjöllun er í Morgunblaðinu í dag.

Nýjustu fréttir

Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Strangar kröfur í útboði heilsuræktar vekja ágreining í bæjarstjórn
Davíð Oddsson fallinn frá
ÍBV strákarnir urðu einnig Powerade bikarmeistarar í 3. flokki
Dýpið mælt í Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.