Tengdadæturnar  Sigurlaug, Emma og Inga létu til sín taka
Byrjuðu ungir að byggja – Stórtæk fjölskylda í fiskvinnslu
Á Sjómannadaginn 14. júní 1981. Aflakóngur Vestmannaeyja, Sigurjón Óskarsson, skipstjóri og útgerðarmaður ásamt konu sinni Sigurlaugu Alfreðsdóttur. Mynd Sigurgeir Jónasson.
Omar Betri
Ómar
Garðarsson

Þóra og Óskar vissu hvað drengjunum sínum var fyrir bestu þegar þeir uxu úr grasi og öfluðu sér fyrstu tekna. Þau lögðu að þeim að fjárfesta í húsum, sem þeir og gerðu. Matthías byggði á Illugagötu 4, Kristján á Illugagötu 32 og Sigurjón á Illugagötu 44. Matthías er enn í sama húsinu en Sigurjón og Kristján bjuggu í sínum húsum til ársins 2019. Leó, bróðir þeirra, byggði hús að Hrauntúni 23.

„Ætli við höfum ekki verið sautján eða átján ára þegar við fórum að huga að húsbyggingum. Við Matti keyptum saman lóðina að Illugagötu 4. Þar var komin gólfplata og timburstafli fylgdi með sem fór í að útbúa dúfnakofa og byrgi. Þegar kom að því að ég færi að byggja var kastað upp túkalli og Matti hafði betur,“ segir Sigurjón.

 

 

Feðgarnir Óskar Matthíasson og Sigurjón Óskarsson. Mynd Sigurgeir.

 

Sparisjóðurinn stóð ekki við sitt

Sigurjón flutti inn í sitt hús 11. maí 1968, á sjálfan lokadaginn. „Ég held að ég hafi verið eitt og hálft til tvö ár að byggja. Þá var ég í Stýrimannaskólanum og vann við húsbygginguna sumarið 1967. Þegar við fluttum inn var litla klósettið tilbúið og hluti af stofunni, en annað var ófrágengið. Svona var þetta á þessum árum.“

Þá, eins og nú, þurfti fólk í byggingaframkvæmdum að taka lán. Sigurjón, nýbyrjaður í námi í Stýrimannaskólanum, hafði samband við Þorstein Víglundsson sparisjóðsstjóra sem lofaði honum láni fyrir gleri í húsið.

„Þegar glerið kom fékk ég hins vegar ekki lánið og fór í Útvegsbankann þar sem ég fékk fyrirgreiðslu. Eftir það steig ég ekki fæti inn fyrir dyr Sparisjóðs Vestmannaeyja í mörg ár.“ Sigurjón lauk við að byggja húsið sitt og lauk einnig Stýrimannaskólanum með láði.

 

Á fullu í aðgerð um borð í Þórunni Sveinsdóttur VE-401, 2. maí 1989. Mynd: Sigurgeir Jónasson.

 

Öflug fjölskylda í útgerð og fiskvinnslu

Fjölskylda Sigurjóns er enn í útgerð og fiskvinnslu. Hún gerir út togarann Þórunni Sveinsdóttur VE og rekur fiskvinnsluna Leo Seafood. Upphaf starfseminnar má rekja til ársins 1976 þegar Óskar, Sigurjón og Gísli Sigmarsson keyptu fiskverkunarhús að Garðavegi 14 og stofnuðu fiskverkunarfyrirtækið Nöf. Starfsemi hófst árið 1977.

„Húsið stóð autt og við byrjuðum að salta fisk og gerðum það til ársins 1988, þegar við leigðum húsið. Heilmikið var unnið þarna og óhemju mikið að gera hjá pabba. Þar störfuðu allt að 40 manns þegar mest var, þar á meðal tengdadætur mömmu og pabba, Sigurlaug, Emma og Inga, systurnar Kristjana og Guðný og barnabörnin; synir okkar Sigurlaugar, Viðar og Gylfi, Óskar Þór sonur Emmu og Stjána, Svenni Matt, frændi þeirra, Bjössi Snæ, mágur pabba, og fleira gott fólk.

Afli var unninn af Leó, Þórunni Sveins og Katrínu sem Gísli átti. Þetta hafa verið 2.000 til 3.000 tonn sem fóru í gegnum Nöfina á vertíð. Við vorum líka í skreiðarverkun og þurrkuðum hausa. Hausaþurrkunin var mikið ævintýri og hausum var hent út um allt hraun. Svo seldist ekkert og fóru margir illa út úr því. Við skulduðum ekkert í hausunum og sluppum þokkalega. Þegar við hættum tóku Einar og Gústi á Kap, Gulli á Gandí og Bjarni Sveins húsið á leigu og Gísli Sigmarsson var með þeim.“

 

Myndin var tekin af Sigurgeiri og sýnir Þórunni Sveinsdóttur VE-401, þann 19. maí 2006.

 

Leo Seafood verður til

Eftir Ísfélagsbrunann í desember 2000 komu starfsmenn Ísfélagsins — Jón Svansson, Björn Þorgrímsson, Einar Bjarnason og Daði Pálsson — til Sigurjóns og vildu stofna fiskverkun. Þeir höfðu augastað á Nöfinni sem þá stóð auð. Sjálfur segist Sigurjón ekki hafa haft áhuga á að fara út í fiskvinnslu en sló þó til — og hefur það eflaust haft sitt að segja að tengdasonurinn Daði var í hópnum.

Úr varð fyrirtækið Godthaab í Nöf, myndarleg fiskvinnsla sem þeir ráku saman til ársins 2018. „Þá keyptum við Jón, Björn og Einar út og nú heitir félagið Leo Seafood og er að öllu leyti í eigu fjölskyldunnar. Fyrirtækið er mjög tæknivætt, með fullkomnar skurðarvélar og mjög stóran lausfrysti. Vinnslan er afar fjölbreytt. Við tökum á móti öllum fiski nema karfa, sem við sendum út. Í heildina eru um 80 manns á launaskrá.

Húsnæði Leo Seafood hefur verið stækkað og endurbætt samhliða auknum umsvifum. Nýlega var tekin í notkun ný og mjög vistleg starfsmannaaðstaða og enn er unnið að frekari endurbótum,“ sagði Sigurjón árið 2021. Sala á Leo Seafood og Ós ehf., útgerð Þórunnar Sveinsdóttur VE, til Vinnslustöðvarinnar lagði síðar grunninn að Laxey.

Viðtalið var í Sjómannadagsblaði Vestmannaeyja 2021. Fleiri greinar úr sögu fjölskyldu Óskar og Þóru næstu daga.

 

Nýjustu fréttir

Nýtt blað Eyjafrétta komið út
Framboðin mætast í Eldheimum í dag
Fjölskylduafþreying í íþróttahúsinu
Sex ferðir í Landeyjahöfn á morgun
Ríkisstyrkt áætlunarflug til Eyja framlengt út mánuðinn
ÍBV á þrjá fulltrúa sem fara á Evrópumótið með u-18
Ísak Rafnsson leggur skóna á hilluna
Útsýnisskálinn opnaður – myndband
viðburðir
Oddvitar 2026 Samsett
14. maí 2026
17:00
Opinn framboðsfundur Eyjafrétta í Eldheimum
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.