Í gær lauk prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum með frábærri þáttöku félagsmanna, en þegar yfir lauk höfðu 1178 manns mætt á kjörstað og greitt atkvæði. Ég vil þakka sérstaklega fyrir þann mikla stuðning sem ég fékk í oddvitasætið og geri allt sem í mínu valdi stendur til að standa undir því trausti sem mér hefur verið falið.
Ég vil þakka öllum frambjóðendum fyrir góða, drengilega og skemmtilega þátttöku. Sjálfstæðisflokkurinn er að stækka í Vestmannaeyjum og saman ætlum við að leggja okkur fram við að ná okkar markmiðum í sveitarstjórnarkosningum þann 16.maí nk.
Eyþór Harðarson, bæjarfulltrúi og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum.