Aðalspaðarnir á tónleikum með Who, Four Seasons, Lulu og Animals
Kristján hélt uppi galsanum í mannskapnum. Stjáni á góðri stund með Tomma, Sigurrós, Marý, Stínu og Simma.
Omar Betri
Ómar
Garðarsson

Áfram er haldið að rekja ættarsögu Þóru og Óskars á Leó 

„Ég byrjaði að róa með pabba á Leó þegar ég var átján ára. Þar áður var ég kokkur á Ver VE. Þetta var vertíðina 1964 og við urðum aflahæstir. Kallinn þakkaði mér það,“ segir Kristján Óskarsson, ekkert nema hógværðin.

„Það var alltaf feimnismál hvað menn voru með margar trossur. Ég hvatti hann til að setja út níundu trossuna. Við vorum að keppa við Helga Bergvins á Stíganda VE og ég var alltaf að hvetja kallinn til að bæta við trossum, sennilega til að fá að fara upp á svið í Höllinni og taka við aflakóngsstyttunni á sjómannadaginn!“

Mikið ævintýri á þessum árum var að sigla með fisk til Englands og Þýskalands á sumrin og haustin. Gat þó verið erfitt að fara yfir hafið á 100 tonna bátum eins og Leó og jafnvel enn minni bátum. Siglingarnar voru engu að síður upplifun fyrir unga menn.

„Það verður að segjast eins og er að í þessu var engin vitglóra! Það situr enn í mér einn andskotans túr á honum Leó. Þá var vitlaust veður báðar leiðir og mikið djöfull var maður þreyttur þegar við komum heim.“

Þeir á Leó fiskuðu á trolli og sigldu til Grimsby og Hull. Fastur liður var að fara með tóg og kopar og fleiri málma til að selja úti. Þá voru innkaupalistar fyrir vini og vandamenn algengir og í erindreksturinn fór dýrmætur tími þegar stoppið var einungis einn sólarhringur.

„Það fór hellings tími í þetta hjá pabba, en við peyjarnir eigum margar góðar minningar úr sölutúrunum. Aflinn var kannski 30 tonn og ég held að salan hafi gefið ágætis pening.“

Flottustu peyjarnir

„Við skemmtum okkur vel og sáum frægar hljómsveitir eins og The Who, Four Seasons, Lulu og The Animals, einmitt þegar þeir síðastnefndu voru í fyrsta sæti vinsældalistans í Bretlandi með House of the Rising Sun. Við hittum Lulu í hléi og hún skrifaði á peningaseðil fyrir okkur, og þann seðil átti ég lengi. Það gekk mikið á þegar goðin komu fram. Þarna voru hjúkrunarkonur í hvítum sloppum, tilbúnar að grípa inn í þegar liðið yfir stelpurnar.“

Við keyptum flottustu jakkafötin og matvæli, meðal annars niðursoðna ávexti. Sumir segja að ég hafi náð í Emmu út á ávextina. Ég bauð henni heim í partý. Ég var ekki byrjaður að drekka en lokkaði hana upp á efstu hæðina á Illugagötu 2 með ávöxtum og rjóma.“

Strákarnir eignuðust bítlaföt, vinsælustu plöturnar og radíófóna með plötuspilara, segulbandi og útvarpi í sama skápnum.

„Ég vil meina að við bræður höfum verið fyrstu diskótekarar landsins. Við tókum Betlehem í Helgafelli á leigu með græjurnar mínar og spiluðum allar flottustu plöturnar. Það var trallað og tjúttað, mikið fjör. Þetta var, held ég, 1964 eða 1965. Við vorum aðalspaðarnir í bænum en höfðum reyndar lítinn tíma til að njóta þess því kallinn reri svo stíft.“

Birtist í Sjómannadagsblaði Vestmannaeyja 2021,

 

Nýjustu fréttir

Aðalspaðarnir á tónleikum með Who, Four Seasons, Lulu og Animals
Sigurjón vann einvígið og tryggði sér titilinn
Meinfýsni
Jafnlaunavottun World Class réð úrslitum
Alla Stella keypti gamalt hús og dánarbú fylgdi með
Allt undir hjá ÍBV gegn KA í dag
ÍBV tapaði gegn Val í lokaleik Olís deildarinnar
Enginn kemst áfram í lífinu á ljóðum einum saman
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.