Aflamark í ýsu aukið um 8.000 tonn

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað reglugerð þess efnis að aflamark í ýsu verði aukið um 8.000 tonn þ.e. úr 44.419 tonnum í 52.419 tonn. Sú hækkun verður dregin frá því aflamarki sem annars yrði úthlutað á fiskveiðiárinu 2021/2022. Kristján Þór gerði ríkisstjórn í morgun grein fyrir þessari ákvörðun.

Tilefni þessarar ákvörðunar eru erfiðleikar sem rekja má til mikillar ýsugengdar á veiðisvæðum við Ísland en þann 21. apríl var búið að veiða rúmlega 90% aflaheimilda í ýsu fyrir yfirstandandi fiskveiðiár.

Hafrannsóknarstofnun og Fiskistofa taka undir að nauðsynlegt sé að bregðast við vandanum.  Í áliti Hafrannsóknarstofnunar segir:

„Eins og fram hefur komið telur ráðuneytið ekki aðrar færar til að taka á vandanum, að óbreyttum lögum, en sú að aflamark verði aukið. Hafrannsóknastofnun leggst ekki gegn því að aflamark verði aukið á yfirstandandi fiskveiðiári enda verða heimildirnar dregnar frá því aflamarki sem annars yrði úthlutað á fiskveiðiárinu 2021/2022, samkvæmt samþykktri aflareglu.

Stofnunin bendir á að aukningin nú gæti valdið því að svipaður vandi komi upp á næsta fiskveiðiári og því mikilvægt að öllum verði ljóst að aukningin nú verði til frádráttar á komandi fiskveiðiári. Slík skilaboð samhliða úthlutun gætu stuðlað að því að ekki verði farið í aukna beina sókn í ýsustofninn sem aukið getur á mögulegan vanda á komandi fiskveiðiári.“

Reglugerðin tekur gildi eftir birtingu í Stjórnartíðindum

Nýjustu fréttir

Halldór Jón aftur í ÍBV
Fluttu hús í heilu lagi
Sjáv­ar­af­urð­ir: Ágæt­is aukn­ing í fe­brú­ar
Eyjarnar landa í Þorlákshöfn
Þarftu að fara á fund?
Hljómey – Klara Einars mætir
Gildin sem móta okkur
Til Sjálfstæðismanna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.