Áframhaldandi takmarkanir til 26. júlí
Eyjapeyjarnir Víðir Reyn­is­son yf­ir­lög­regluþjónn og Þórólf­ur Guðna­son sótt­varna­lækn­ir á blaðamanna­fundi. mynd mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, að tillögu sóttvarnalæknis, að framlengja auglýsingu um takmörkun á samkomum óbreytta um þrjár vikur, þ.e. til 26. júlí. Fjöldatakmörk á samkomum miðast því áfram við 500 manns. Opnunartími spilasala og veitingastaða með vínveitingaleyfi verður einnig óbreyttur og heimilt að hafa opið til 23.00 á kvöldin. Upplýsingagjöf til almennings um einstaklingsbundnar sýkingavarnir verður efld.

Frá því að skimanir hófust á landamærum 15. júní síðastliðinn hafi um 22.000 ferðamenn komið til landsins og sýni verið tekin hjá um 16.000 manns (tölur frá 2. júlí). Virk smit hafa greinst hjá sjö einstaklingum og rúmlega 400 manns hafa þurft að fara í sóttkví eftir smitrakningu. Enginn er alvarlega veikur. Sóttvarnalæknir segir um ákveðið bakslag að ræða sem hafi ekki verið óviðbúið en að lágmarka þurfi áhættuna á því að faraldurinn nái sér á strik hér á landi. Tillaga sóttvarnalæknis um að ekki verði slakað frekar á reglum um samkomubann að sinni byggist á þessu, auk þess sem hann leggur áherslu á að efla fræðslu um einstaklingsbundnar sýkingavarnir. Heilbrigðisráðherra hefur sem fyrr segir fallist á tillögu sóttvarnalæknis um að framlengja óbreyttar reglur um takmarkanir á samkomum og verður auglýsing þess efnist birt á næstu dögum í Stjórnartíðindum.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.