Á­hrif breytinga á veiði­gjaldi – stað­reyndir og á­hrif nýs frum­varps
Eftir Viðar Elíasson
26. maí, 2025
F3cea2d0 Bf35 45bf 8283 8afebe297627 Narfi
Viðar Elíasson

Á undanförnum árum hefur sífellt verið reynt að þrýsta á um hækkun veiðigjalda með rangfærslum og ósönnum fullyrðingum. Nú liggur fyrir frumvarp sem felur í sér stórfellda hækkun á veiðigjöldum og byggir á fullkomlega óraunhæfum forsendum. Útvegsbændafélag Vestmannaeyja fundaði nýverið með þingmönnum Suðurkjördæmis. Þar útskýrðum við annars vegar ranga útreikninga sem liggja að baki frumvarpinu og hins vegar hvaða alvarlegu afleiðingar þessi aðgerð mun hafa, ekki bara fyrir sjávarútveginn heldur allt samfélagið í Eyjum. Þingmenn Miðflokks, Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Flokks fólksins mættu á fundinn og eiga þeir þakkir skyldar fyrir samtalið.

En staðreyndir málsins verða að tala sínu máli: Allar niðurstöður og útreikningar sem hér liggja til grundvallar byggja á staðreyndum og ítarlegum útreikningum. Staðreyndirnar eru þessar:

  • Veiðigjöld hafa hækkað undanfarin ár þrátt fyrir minni heildarafla. Það þýðir að veiðigjöld á kíló hafa hækkað.
  • Fullyrðingar um að þau standi ekki undir kostnaði ríkisins við greinina eru rangar.
  • Það er rangt að miða við verð á norskum uppboðsmörkuðum eða fiskmörkuðum sem réttmætan grundvöll fyrir útreikning á veiðigjaldi.
  • Sú fullyrðing að útgerðin haldi eftir 2/3 af hagnaði stenst ekki skoðun.
  • Allt sem greinin hefur skapað byggir á miklum fjárfestingum og raunverulegum rekstrarlegum forsendum. Þetta staðfestir samanburður á rekstrarafkomu fyrirtækja í Vestmannaeyjum í útgerð, þjónustu og iðnaði yfir 10 ára tímabil þar sem fram kemur að enginn munur sé á ávöxtun þeirra og því enga auðlindarentu að finna.

Hækkun á veiðigjaldi – hversu langt á það að ganga?

Veiðigjöld hafa hækkað milli ára, þrátt fyrir minnkandi heildarafla. Nú þegar eru veiðigjöld um 10 milljarðar króna í fjármálaáætlun fyrir árið 2025 og öll áform stjórnvalda ganga út á að hækka þau enn frekar. Greining okkar sýnir hins vegar að raunveruleg veiðigjöld, með óbreyttu kerfi, munu verða talsvert hærri fyrir árið 2025 en við teljum að líklegt að atvinnuvegaráðuneytið vanmeti veiðigjöldin í útreikningi sínum. Í frumvarpi til breytinga á lögum um veiðigjald er því haldið fram að innheimt veiðigjöld fyrir árið 2023 hafi ekki staðið undir kostnaði ríkisins. Þessi fullyrðing um að tekjur ríkisins af veiðigjöldum standi ekki undir kostnaði stenst enga skoðun, hvorki eigið mat stjórnvalda né skv. greiningu SFS á kostnaði við greinina.

Hvað er raunverulegt verðmæti?

Í frumvarpinu er því ranglega haldið fram að núverandi kerfi endurspegli ekki raunverulegt fiskverð. Þetta er hreinn tilbúningur. Á Íslandi hefur í áratugi gilt mjög skýrt fyrirkomulag um hvernig verðmyndun fer fram á milli útgerða og fiskvinnslu. Það er ákveðið með lögum og í kjarasamningum, síðan sér Verðlagsstofa skiptaverðs til þess að öllu sé rétt framfylgt. Allar tilraunir stjórnvalda til að smygla inn gögnum um verð frá öðrum löndum, eða rugla saman ólíkum markaðsaðstæðum, eru tilraun til að réttlæta ósanngjarna skattheimtu.

Í þorski og ýsu er fiskverðið ákveðið sem 80% af meðalverði sömu tegunda á fiskmarkaði síðustu þriggja mánaða. Markmiðið er að verðið sem fiskvinnslan greiðir fyrir fiskinn sé um 55% af heildartekjum fiskvinnslunnar. Þetta kerfi tryggir jafnvægi og sanngirni og er rýnt og uppfært reglulega með aðkomu sjómanna, útgerðar og Verðlagsstofu skiptaverðs. Í uppsjávarfiski byggist verðlagning á raunverulegu endanlegu söluverði afurða.

Við útskýrðum fyrir þingmönnunum með tölum og gögnum hvernig samanburður ráðuneytisins á makríl milli Noregs og Íslands er rangur. Auk þess útskýrðum við að sömu gögn um samanburð á síld og kolmunna væru ekki nægjanlega góð til að við gætum nokkuð fullyrt um niðurstöðuna. Samanburður við aðrar þjóðir án þess að taka tillit til ólíkra framleiðsluaðferða, markaða, birgða eða afleiddra verðmæta er einfaldlega blekking. Ef notast væri við hráefnisverð á uppsjávarfiski að norrænni fyrirmynd, eins og frumvarpið boðar, myndi hráefniskostnaður fiskvinnslunnar hlaupa upp í 75–110% af afurðaverði. Slíkt er hvorki raunhæft né eðlilegt. Að ætla að lögfesta slíkt er ábyrgðarlaust og dregur kjarkinn úr atvinnugrein sem hefur byggt upp lífsskilyrði heilla byggðarlaga.

Bein og afdráttarlaus áhrif

Íslendingar eru meðal leiðandi þjóða í heiminum í tækni og framleiðni í fiskvinnslu. Samkeppnishæfni íslenskrar fiskvinnslu er þegar skert í samanburði við aðra vegna hærri launakostnaðar og aukinna álaga. Eina leiðin til þess að mæta samkeppni, á sama tíma og áhersla er á verðmætasköpun heima fyrir, er að fjárfesta í nýjustu tækni og auka framleiðni. Fjárfesting í hátæknivinnslum hefur stóraukið framleiðni í fiskvinnslu og tryggt samkeppnishæfni íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja. Ef frumvarpið verður að lögum grefur það undan samkeppnisstöðu greinarinnar, fjárfestingar stöðvast, verðmætasköpun minnkar og störfum í fiskvinnslu fækkar verulega fyrir utan afleiðingar á tengdar greinar um allt land sem og á tekjur sveitarfélaga.

Er ofurhagnaður í íslenskum sjávarútvegi?

Fullyrðingar um umframhagnað eða auðlindarentu eiga sér enga stoð í raunveruleikanum. Ítarleg greining okkar á rekstri útgerðar í Vestmannaeyjum sem stunduðu bæði bolfisk- og uppsjávarveiðar á árunum 2019-2024 sýnir að veiðigjöld hafa verið 48% af hagnaði tímabilsins. Ef það frumvarp sem nú liggur fyrir hefði verið í gildi á þessu sama tímabili þá hefðu veiðigjöld numið 99% af hagnaði tímabilsins. Það er því augljóst að fullyrðingin um að 2/3 af hagnaði útgerða sitji eftir í fyrirtækjunum er einfaldlega röng. Það eru engar forsendur fyrir því að tala með þeim hætti, hvorki með tilliti til rauntalna né rekstrarreynslu þeirra sem starfa í greininni. Það er útilokað að byggja upp fyrirtæki, fjárfesta eða skapa ný störf við slíkar aðstæður. Svona skattheimta bítur fyrst og fremst á landsbyggðina, fólkið sem vinnur í greininni og alla þjónustuaðila. Á endanum verður það íslenskt samfélag sem tapar.

Rótin að verðmætasköpun – fjárfesting og endurnýjun

Á síðasta áratug hafa sjávarútvegsfyrirtæki í Vestmannaeyjum fjárfest yfir 40 milljörðum í skipum, búnaði og tækni. Þessar fjárfestingar eru forsenda verðmætasköpunar, nýsköpunar og áframhaldandi lífs í sjávarútvegi. Ef svigrúm til slíkra fjárfestinga hverfur þá hverfa verðmætin með. Þessum staðreyndum verður ekki á móti mælt.

Að lokum

Það er skýlaus krafa Útvegsbændafélags Vestmannaeyja að ákvarðanir stjórnvalda séu byggðar á staðreyndum, ekki tilviljanakenndum fullyrðingum eða skammtímapólitík. Veiðigjaldafrumvarpið byggir á röngum forsendum, ósanngjörnum samanburði og gengur gegn hagsmunum landsmanna allra. Ef ekki verður hætt við þessa stefnu má búast við stórfelldum skaða á atvinnulífi, búsetu og verðmætasköpun í íslensku samfélagi.

 

Viðar Elíasson

Höfundur er formaður Útvegsbændafélag Vestmannaeyja.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 5 Tbl EF
5. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.