Akureyrarbær hefur stefnt Snorra �?skarssyni sem kenndur er við Betel vegna úrskurðar innanríkisráðuneytisins, sem einnig er stefnt til réttargæslu. Ráðuneytið úrskurðaði í vor að uppsögn Snorra sem kennara við Brekkuskóla hefði verið ólögmæt.
Forsaga málsins er sú að árið 2012 var Snorri áminntur og sendur í sex mánaða leyfi frá störfum sem kennari, eftir að hann birti bloggfærslu um samkynhneigð. Síðar var Snorra sagt upp störfum, eftir að foreldrar höfðu krafist þess.
�?essa ákvörðun kærði Snorri til innanríkisráðuneytisins, sem kvað upp sinn úrskurð í vor. �?ar sagði að bæði áminning og uppsögn Snorra hefði verið ólögmæt. Niðurstaðan byggði á því að ummæli Snorra hefðu ekki haft áhrif á starf hans í skólanum, en því eru bæjaryfirvöld á Akureyri ósammála.
Í stefnunni segir að orðræða og störf stefnda hafi haft áhrif á skólastarf, það hafi verið lögbundið markmið hans sem kennara að verja grunnskólabörn fyrir meiðandi ummælum um samkynhneigð. Snorri hafði lýst því á bloggi sínu að samkynhneigð væri dauðasynd og telur bærinn að þessi ummæli hafi þótt meiðandi gagnvart nemendum. Vísað er í mannauðsstefnu bæjarins þar sem segir að framkoma og athafnir utan vinnustaðir verði að samrýmast því starfi sem viðkomandi gegnir.
ruv. is greindi frá