Arnar um atburðarás helgarinnar: �??Búið að vera erfitt og það er ekkert leyndarmál
�??�?að voru margir sem gerðu mistök um helgina og auðvitað varð að bregðast við því. Stjórn og handboltaráð fannst mér taka vel á þessum málum og fara eins vel í gegnum þetta og hægt var,�?� sagði Arnar í samtali við Akraborgina í gær og mælum við með að hlusa á viðtalið hérna.
En mun Sigurður snúa aftur á hliðarlínuna í vor?
�??Nei, engin ákvörðun verið tekinn um það. Sigurður Bragason er minn uppeldisfélagi. Hann gerði mistök sem enginn sér meira eftir en hann og við verðum að leyfa tímanum að líða og sjá hvernig málin þróast. Theodór, sem er mér einnig afskaplega kær, er að jafna sig. Staðan var ekkert sérstök, en hann er að koma til. Tíminn verður að leiða í ljós hver næstu skref verða og hvernig við tæklum þetta.�?�
Sigurbergur Sveinsson og Róbert Aron Hostert voru í agabanni í leiknum í gær, en Arnar segir að þeir eins og fleiri hafi gert mistök. �??Eins og fleiri þá gerðu þeir mistök, en það gera allir mistök. �?g held ég þekki engan sem hefur ekki gert nein mistök. �?eir læra að því og eru örugglega búnir að því. �?g á ekki von á neinu öðru en að þeir komi sterkari til baka.�?�
�??�?etta er allt að koma. Auðvitað er þetta búið að vera erfitt og það er ekkert leyndarmál. �?að þarf enginn að ljúga einhverju öðru, en við erum að sjá ljósið og erum farnir að finna fyrir því aftur að við erum bikarmeistarar og ná stórum titli í hús.�?�

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði gegn Val í lokaleik Olís deildarinnar
Enginn kemst áfram í lífinu á ljóðum einum saman
Hugmyndin að húsinu fæddist eftir samtal við vini
Vorlykt í lofti
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins lagður fyrir fulltrúaráðið
Jói Listó – Ótrúlegur ferill mikils listamanns
Toppliðin takast á í lokaleik Olísdeildarinnar
Gular viðvaranir allvíða – Suðaustanhríð á Suðurlandi

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.