Ársþing KSÍ á næsta ári fer fram í Vestmanneyjum. Ársþingið verður haldið laugardaginn 11. febrúar næstkomandi.
Möguleiki er á formannsslag á ársþinginu en Guðni Bergsson íhugar að bjóða sig fram gegn sitjandi formanni, Geir �?orsteinssyni.
Yfirleitt fer ársþingið fram í Reykjavík en af og til hefur það verið haldið úti á landi. Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, óttast ekki að fulltrúar félaganna mæti síður á ársþingið þar sem það verði ekki á höfuðborgarsvæðinu.
�??Reynslan er sú að ársþing hafa verið mjög vel sótt þegar við höfum þingin utan Reykjavíkur,”” sagði Klara við Fótbolta.net.
�??�?g á von á því að Reykvíkingar sem og aðrir mæti til Vestmannaeyja. �?að er jafn langt í báðar áttir. Við ætlumst til að Vestmannaeyingar mæti til okkar og þá hljótum við að geta mætt til þeirra.””
Frétt frá Fótbolta.net. Sjá alla fréttina: http://www.fotbolti.net/news/02-12-2016/arsthing-ksi-fer-fram-i-vestmannaeyjum”;”ixzz4RgfGUEOd