Ársþing SASS: Farsæld barna og byggðaþróun í brennidepli
Frá ársþingi SASS. Ljósmynd/aðsend.

Ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) stendur nú yfir í félagsheimilinu Kirkjuhvoli á Kirkjubæjarklaustri í Skaftárhreppi. Um 100 fulltrúar frá öllum 15 sveitarfélögum á Suðurlandi sækja þingið, ásamt alþingismönnum, starfsmönnum samtakanna og öðrum opinberum starfsmönnum. Meginmarkmið þingsins er að móta sameiginlegar tillögur og ályktanir í hagsmunagæslu fyrir landshlutann í heild.

Á þinginu í ár er sjónum sérstaklega beint að farsæld barna og málefnum byggðaþróunar. Meðal annars er starfsemi Farsældarráðs á Suðurlandi kynnt, auk þess sem byggðaþróunarfulltrúar og sveitarstjórnarfulltrúar fara yfir reynsluna um hlutverk þeirra fulltrúa í þróun byggðarlaga.

Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa eru mikilvæg hagsmunamál rædd. Þar má sérstaklega nefna löggæslumál í landshlutanum og þær áskoranir sem þar er að finna.

Samhliða þinginu fara einnig fram aðalfundir Heilbrigðiseftirlits Suðurlands bs. og Sorpstöðvar Suðurlands bs. Þar verður meðal annars fjallað um umfang og kostnað úrgangsmála og aukin tækifæri í samstarfi sveitarfélaga á því sviði.

„Það er alltaf tilhlökkunarefni að koma saman á ársþingi SASS,“ segir Ingunn Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SASS. „Þetta er okkar helsti vettvangur til að ræða sameiginlegar áskoranir og tækifæri landshlutans. Markmið mitt og stjórnar er að við förum af þinginu enn samstilltari og með skýra sýn á þau verkefni sem fram undan eru til að efla Suðurland.“

Við hátíðlega móttöku Skaftárhrepps í kvöld verða hin árlegu menningarverðlaun SASS afhent. Þinginu lýkur á morgun, föstudaginn 24. október, segir í tilkynningu frá samtökunum.

Nýjustu fréttir

Í dag eru 53 ár frá upphafi Heimaeyjargossins
Bærinn í samstarf við Markaðsstofu Suðurlands
Alex Freyr Hilmarsson íþróttamaður Vestmannaeyja
Tvíþætt staða orkuskipta
Netöryggisfræðsla fyrir foreldra grunn- og framhaldsskólanemenda
Áskriftarkort sundlaugagesta framlengd
Eyjarnar landa fyrir austan
Sýningin Geological Rhapsody opnar á morgun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.