ASÍ gagnrýnir harðlega niðurskurð og samráðsleysi stjórnvalda
asi_asi_is

Formannafundur Alþýðusambands Íslands 2025 lýsir yfir miklum áhyggjum af stöðu efnahags- og kjaramála og gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir að velta byrðunum yfir á heimilin og tekjulægstu hópana.

Áhyggjur af stöðu efnahagsmála

Formannafundur ASÍ 2025 gagnrýnir harðlega niðurskurðarstefnu og samráðsleysi stjórnvalda og segir ríkisstjórnina ganga á réttindi og kjör launafólks.

Formannafundur lýsir yfir vaxandi áhyggjum af stöðu efnahags- og kjaramála. Skýr merki séu um kólnun í hagkerfinu, atvinnuleysi fari vaxandi, verðbólga og stýrivextir séu enn óásættanlega háir og ekkert lát virðist á hávaxtastefnunni.

Helsti drifkraftur verðbólgunnar sé áfram úrræðaleysi stjórnvalda í húsnæðismálum, sem bitni verst á ungu fólki og tekjulægri heimilum, auk gróðasóknar fyrirtækja sem hafi ekki haldið aftur af verðhækkunum.

Formannafundurinn bendir á að með undirritun stöðugleikasamninganna á vinnumarkaði vorið 2024 hafi launafólk axlað ríka ábyrgð á að stuðla að hjöðnun verðbólgu og lækkun vaxta. „Ábyrgðin á verðstöðugleikanum verður ekki sett eingöngu á herðar launafólks,“ segir í ályktuninni. „Nú er komið að því að stjórnvöld og fyrirtæki axli sína ábyrgð.“

Hörð gagnrýni á fjárlagafrumvarpið

Formannafundurinn hafnar þeim aðgerðum sem ríkisstjórnin hefur boðað til að ná markmiðum í ríkisfjármálum. Með þeim séu þyngstu byrðarnar lagðar á atvinnulausa, barnafólk, ellilífeyrisþega og heimilin í landinu.

Verði fjárlagafrumvarpið samþykkt óbreytt muni það þýða skerðingar á lífeyrisréttindum verkafólks, rýrnun barnabóta og húsnæðisstuðnings, lækkun framlaga til íslenskukennslu, hærri gjöld í heilbrigðisþjónustunni og veikari atvinnuleysistryggingar, á sama tíma og atvinnuleysi eykst.

Krefjast endurskoðunar á örorkumálum

Formannafundurinn ítrekar jafnframt ákall sitt til ríkisstjórnarinnar um að endurskoða áform sín um niðurfellingu framlags til jöfnunar á örorkubyrði lífeyrissjóða þar til annað fyrirkomulag hefur verið samið.

„Verkalýðshreyfingin mun aldrei fallast á að verka- og láglaunafólk verði eitt látið bera byrðarnar af misskiptri örorkubyrði með frekari lækkun á lífeyrisréttindum sínum,“ segir í ályktuninni.

Nýjustu fréttir

Í dag eru 53 ár frá upphafi Heimaeyjargossins
Bærinn í samstarf við Markaðsstofu Suðurlands
Alex Freyr Hilmarsson íþróttamaður Vestmannaeyja
Tvíþætt staða orkuskipta
Netöryggisfræðsla fyrir foreldra grunn- og framhaldsskólanemenda
Áskriftarkort sundlaugagesta framlengd
Eyjarnar landa fyrir austan
Sýningin Geological Rhapsody opnar á morgun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.