Bæjaryfirvöld í Eyjum vilja skoða þann möguleika að fá til landsins farþegabát sem hægt væri að nota til siglinga í Landeyjahöfn næsta vetur, þegar Herjólfur þarf að sigla til Þorlákshafnar. Í umfjöllun í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að bæjarstjórinn hefur óskað eftir því við vegamálastjóra að fá faglegan stuðning við athugun á þessum möguleika.