Fasteignaumfjöllunin - útsýni á heimsmælikvarða
Annika Staff
Annika
Vignisdóttir

Hér í Vestmannaeyjum má finna fjölbreyttar fasteignir með ólíka kosti, staðsetningu og möguleika. Í fasteignaumfjöllun Eyjafrétta skoðum við eignir sem eru til sölu hverju sinni og rýnum í hvað gerir þær áhugaverðar fyrir væntanlega kaupendur. Farið er yfir skipulag, helstu kosti og þá þætti sem geta skipt máli við val á nýju heimili. 

Að þessu sinni tökum við fyrir rúmgóða og vel staðsetta eign á Sóleyjargötu 5. Um er að ræða hæð, ris og bílskúr í tvíbýli. Húsið er byggt úr steini árið 1955 og er eignin 194,7 m2 skv. fasteignaskrá þar af er bílskúr skráður 63,3 m2 byggður árið 2012. 

Eignin er á góðum stað og nýtur glæsilegs útsýnis. Á undanförnum árum hefur verið farið í umtalsvert viðhald og endurbætur. Húsið hefur verið einangrað og klætt að utan með álklæðningu og búið er að skipta um flesta glugga. Innanhúss hefur eldhús verið endurnýjað, gólfefni víða endurnýjuð og eignin máluð. Í íbúðinni eru fjögur rúmgóð svefnherbergi 

Bílskúrinn er rúmgóður og býður upp á mikla möguleika, hvort sem hann er nýttur sem geymsla, vinnurými eða til frekari uppbyggingar. 

Sömu eigendur eiga einnig neðri hæð hússins sem er 106,8 fermetrar. Um er að ræða tvö fastanúmer og því möguleiki á að kaupa allt húsið, samtals um 300 fermetra, sem opnar á fjölbreytta nýtingarmöguleika, til dæmis fyrir stærri fjölskyldu.  

Við heyrðum hljóðið í Guðjóni Pétri eiganda eignarinnar og fengum hann til að svara nokkrum spurningum fyrir Eyjafréttir  

Hvað myndir þú segja að væru helstu kostir eignarinnar?
„Þetta eru í raun tvær eignir og ég myndi segja að báðar henti vel sem fjölskyldueignir. Efri hæðin er fimm herbergja íbúð á miðhæð og í risi. Húsið hefur verið klætt og einangrað að utan og búið er að skipta um flesta glugga. Þakið var tekið í gegn fyrir nokkrum árum, þannig að húsið í heild sinni er í mjög góðu ástandi. 

Það sem á eftir að klára er frágangur á lóð að framan, þar sem fyrirhugaður er pallur og lítið grassvæði. Annars er miðhæðin og risið ótrúlega flott og rúmgóð fimm herbergja íbúð með sérbýlisbrag.“ 

Hvað myndir þú segja að væri stærsti kosturinn við staðsetninguna?
„Það er stutt í bæði grunnskóla og framhaldsskóla. Svo er auðvitað frábært útsýni, útsýni á heimsmælikvarða myndi ég segja. Þá eru nágrannarnir líka einstaklega góðir. Í húsinu við hliðina eru þrjár íbúðir þar sem búa þrjár yndislegar konur sem taka vel á móti fólki og skapa notalegt og vinalegt umhverfi. Fólk má því búast við góðu nágrannasamfélagi.“ 

Bílskúrinn býður upp á ýmsa möguleika. Hvernig sjáið þið fyrir ykkur að nýir eigendur gætu nýtt það rými?
„Bílskúrinn er stór og veglegur og býður upp á mikla möguleika. Hann er í raun fokheldur og um 70 fermetrar að stærð. Þar væri til dæmis hægt að útbúa íbúð eða nýta sem rúmgóða geymslu, til dæmis fyrir hjólhýsi eða annað. Hann er tiltölulega nýlegur og mjög gott rými með fjölbreytta nýtingarmöguleika.“ 

Frekari upplýsingar um eignina má finna hjá Halldóru Kristínu fasteignasala hjá Eyjaeignum. Hægt er að hafa samband við hana í gegnum tölvupóst, dora@eyjaeignir.is.  

Nýjustu fréttir

Fjörugt föstudagskvöld með SSSól í Eyjum
Gætti vandlega að græna litnum á Ísleifunum
Sjómannadagskrá laugardags
Sjómannskonur: Ásta Jóna
Bærinn skýrir ástandið í Búastaðagryfju
Blómaakkeri prýðir Stakkagerðistúnið fyrir sjómannadaginn
Sjómannskonur: Harpa Hjartardóttir
Fækkun skemmtiferðaskipa fram undan

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.