Auðlindin okkar – Fjörugur fundur í Eyjum

Þriðji fundurinn í fundaröðinni, Auðlindin okkar var haldinn í Vestmannaeyjum áttunda nóvember. Mæting var góð og fjörugar umræður þar sem komið var inn á flest það sem snýr að sjávarútvegi.
Um hann segir á vef stjórnarráðsins:
Líflegar umræður og skoðanaskipti áttu sér stað á vel sóttum þriðja fundi fundaraðarinnar Auðlindin okkar sem haldinn var 8. nóvember í Akóges-salnum í Vestmannaeyjum. Umhverfis- og loftlagsmál, hafrannsóknir, stafræn þróun, fyrirsjáanleiki, orðspor sjávarútvegs, samfélagssátt, strandveiðar, orkuskipti og byggðakvóti voru fundargestum ofarlega í huga.

Líkt og á fundunum á Ísafirði og Eskifirði var þátttaka góð í umræðum, bæði í sal og í gegnum streymið. Fundarstjóri var Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. Rebekka Hilmarsdóttir, sérfræðingur á skrifstofu sjávarútvegs og fyrrum bæjarstjóri Vesturbyggðar, kynnti verkefnið Auðlindin okkar og vinnu starfshópanna Aðgengi, Samfélag, Tækifæri og Umgengni. Á þriðja þúsund áhorfenda hafa nú fylgst með streymi frá fundaröðinni.

Auk fjölmargra fundargesta sem tóku þátt í umræðum tóku einnig þátt í fundinum þau Jónas Rúnar Viðarsson, sviðsstjóri Matís og fulltrúi í starfshópnum Umgengni, Friðrik Árni Friðriksson, framkvæmdastjóri hjá Lagastofnun Háskóla Íslands og fulltrúi í starfshópnum Aðgengi, Hildur Ingvarsdóttir, skólameistari Tækniskólans og fulltrúi í starfshópnum Tækifæri, Gunnar Haraldsson, framkvæmdastjóri Intellecon og formaður starfshópsins Samfélag, Óskar Veigu Óskarsson, sölustjóri Marel og fulltrúi í starfshópnum Tækifæri og Benedikt Árnason ráðuneytisstjóri matvælaráðuneytis.

Næsti og síðasti fundur Auðlindarinnar okkar verður haldinn í Hofi á Akureyri í dag, 15. nóvember.

Öll þau sem láta sig málefni auðlindarinnar og sjávarútvegsins varða eru hvött til að fylgjast með fundinum, hægt verður að senda inn athugasemdir og fyrirspurnir í streymi.

Streymið af fundunum á Ísafirði, Eskifirði og í Vestmanneyjum má sjá á audlindinokkar.is ásamt ítarlegri upplýsingum um verkefnið.“

 

Nýjustu fréttir

Tjón á nýju vatnslögninni
Kristján myndaði einn í Hellisey í heila viku
Íbúum í Eyjum fjölgar á ný
Óska eftir vitnum að líkamsárás
Endurraðað í nefndir skömmu eftir sveitarstjórnarkosningar
Sjö sinnum orðið aldimmt um hábjartan dag í Eyjum
Mikilvæg verkefni og fjölbreytt starfsemi hjá HSU
Nei og aftur nei
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.