Endurraðað í nefndir skömmu eftir sveitarstjórnarkosningar
Ráðhús Vestmannaeyja. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Aðeins rúmum tveimur mánuðum eftir sveitarstjórnarkosningarnar í maí hefur verið endurraðað í nokkrar nefndir, stjórnir og fulltrúasæti Vestmannaeyjabæjar.

Bæjarráð samþykkti breytingarnar samhljóða á fundi sínum. Þær snúa meðal annars að fulltrúum á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga, aðalfundi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og í stjórn Eyglóar ehf.

Arndís María Kjartansdóttir tekur við sem aðalfulltrúi á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga af Jóni Þór Guðjónssyni. Anton Örn Björnsson verður varamaður í stað Sæunnar Magnúsdóttur.

Anton Örn verður jafnframt aðalfulltrúi á aðalfundi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga í stað Sæunnar, sem tekur sæti hans sem varafulltrúi. Erlingur Guðbjörnsson og Hildur Rún Róbertsdóttir verða varafulltrúar í stað Jóhanns Inga Óskarssonar og Sonju Andrésdóttur.

Þá tekur Anton Örn sæti Jóns Þórs sem aðalfulltrúi í stjórn Eyglóar ehf. og Arndís María verður varamaður í stað Sæunnar. Einnig verður Þór Vilhjálmsson varamaður í yfirkjörstjórn í stað Guðna Hjörleifssonar.

Breytingarnar voru samþykktar samhljóða og teljast fullnaðarafgreiðsla bæjarráðs í sumarleyfi bæjarstjórnar.

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.