Tjón á nýju vatnslögninni

Skemmdir urðu á nýju almannavarnarlögninni NSL-4 við útlagningu aðfaranótt sunnudagsins 9. ágúst. Vinna við lagningu hennar var stöðvuð í kjölfarið og er nú beðið eftir skýrslu um orsakir og umfang tjónsins. Vestmannaeyjabær greindi frá þessu í tilkynningu í dag. Þar kemur fram að atvik hafi orðið hjá Subsea 7, sem annast útlagningu lagnarinnar, með þeim […]

Kristján myndaði einn í Hellisey í heila viku

Kristján Egilsson, pípulagningameistari, safnstjóri Fiska- og náttúrugripasafns Vestmannaeyja og uppstoppari, er einnig afbragðs ljósmyndari, eins og sjá má reglulega á Facebook-síðu hans. Þar eru það ekki síst fuglamyndirnar sem vekja athygli og þar sem fuglalíf og náttúra Vestmannaeyja fá að njóta sín. Kristján byrjaði ungur að taka myndir en segir að ljósmyndaáhuginn hafi fyrst tekið […]

Íbúum í Eyjum fjölgar á ný

default

Íbúum í Vestmannaeyjum hefur fjölgað nokkuð frá síðustu talningu Eyjafrétta. Samkvæmt upplýsingum frá Vestmannaeyjabæ voru 4.776 íbúar skráðir í sveitarfélaginu í dag, 11. ágúst. Þegar Eyjafréttir fjölluðu síðast um íbúaþróunina þann 23. desember 2025 voru íbúarnir 4.757 talsins. Íbúum hefur því fjölgað um 19 frá því í lok síðasta árs, eða um 0,4 prósent. Þróunin […]

Óska eftir vitnum að líkamsárás

Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum að líkamsárás sem átti sér stað á Brekastíg um klukkan 19.30 laugardaginn 1. ágúst. Þar var einstaklingur sleginn hnefahöggi í höfuðið af óþekktum aðila sem yfirgaf vettvang í kjölfarið. Brotaþoli var fluttur á brott með sjúkrabifreið. Þau sem urðu vitni að árásinni eða búa yfir upplýsingum um hana eru […]

Endurraðað í nefndir skömmu eftir sveitarstjórnarkosningar

Aðeins rúmum tveimur mánuðum eftir sveitarstjórnarkosningarnar í maí hefur verið endurraðað í nokkrar nefndir, stjórnir og fulltrúasæti Vestmannaeyjabæjar. Bæjarráð samþykkti breytingarnar samhljóða á fundi sínum. Þær snúa meðal annars að fulltrúum á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga, aðalfundi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og í stjórn Eyglóar ehf. Arndís María Kjartansdóttir tekur við sem aðalfulltrúi á landsþingi Sambands […]

Sjö sinnum orðið aldimmt um hábjartan dag í Eyjum

Vestmannaeyjar eiga einstaka sögu þegar kemur að sólmyrkvum – Enginn af 41 viðmiðunarstað Almanaks Háskólans hefur fengið fleiri almyrkva – Á morgun hverfur um 99,6% sólarskífunnar en örmjó sólrönd ræður úrslitum. Vestmannaeyingar hafa í gegnum aldirnar verið óvenju heppnir – eða óheppnir, eftir því hvernig á það er litið – þegar tunglið hefur lagt leið […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.