Tjón á nýju vatnslögninni
Útlagningarskipið Seven Navica. Ljósmynd: Eyjafréttir/ÓPF

Skemmdir urðu á nýju almannavarnarlögninni NSL-4 við útlagningu aðfaranótt sunnudagsins 9. ágúst. Vinna við lagningu hennar var stöðvuð í kjölfarið og er nú beðið eftir skýrslu um orsakir og umfang tjónsins.

Vestmannaeyjabær greindi frá þessu í tilkynningu í dag. Þar kemur fram að atvik hafi orðið hjá Subsea 7, sem annast útlagningu lagnarinnar, með þeim afleiðingum að hún skemmdist.

Strax í kjölfarið var ráðist í greiningar- og úttektarvinnu á vettvangi í samvinnu við hlutaðeigandi sérfræðinga. Sú vinna hefur staðið yfir undanfarna daga.

Nú er beðið eftir formlegri skýrslu frá Subsea 7 sem á að staðfesta nákvæmar orsakir tjónsins og hversu umfangsmiklar skemmdirnar eru.

Í tilkynningu Vestmannaeyjabæjar á sunnudag kom aðeins fram að tæknilegir örðugleikar hefðu tafið framkvæmdina og að útlagningaraðilinn ynni að því að yfirfara og meta stöðuna.

Ekki liggur fyrir á þessu stigi hvaða áhrif tjónið hefur á framhald framkvæmdarinnar eða hvenær útlagning getur hafist á ný. Vestmannaeyjabær segist munu veita frekari upplýsingar þegar niðurstöður skýrslunnar liggja fyrir.

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.