Tæknilegir örðugleikar tefja lagningu NSL-4
Útlagningarskipið Seven Navica. Myndirnar eru teknar í dag. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Vinna við útlagningu nýju almannavarnarlagnarinnar milli lands og Eyja hefur tafist. Útlagningaraðili vinnur nú að því að yfirfara stöðuna og meta næstu skref. Þetta kemur fram í tilkynningu Vestmannaeyjabæjar sem birt var í dag.

Útlagningarskipið Seven Navica hefur verið á svipuðum slóðum undanfarna sólarhringa, þótt það hafi farið ágætan spöl í gærkvöldi.

Samkvæmt upplýsingum sem Vestmannaeyjabær hefur fengið hafa tæknilegir örðugleikar tafið framkvæmdina. Útlagningaraðilinn vinnur nú að því að yfirfara og meta stöðuna, en frekari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu.

Útlagning NSL-4 hófst aðfaranótt miðvikudags. Í fyrri tilkynningu bæjarins kom fram að áætlað væri að útlagningu lagnarinnar lyki um helgina. Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta tók meðfylgjandi myndir í dag.

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.