Heilbrigðisstofnun Suðurlands hefur gefið út sjötta tölublað fréttapóstsins Hjartað í HSU. Í inngangspistli blaðsins fer Díana Óskarsdóttir, forstjóri HSU, yfir fjölbreytta starfsemi stofnunarinnar undanfarna mánuði, áskoranir í rekstrinum og þau mikilvægu verkefni sem unnið er að víðs vegar um heilbrigðisumdæmið.
Pistil Díönu má lesa hér að neðan.
Sumarið er tími þar sem mörg okkar staldra við, líta yfir farinn veg og undirbúa næstu skref. Þrátt fyrir að flest fólk njóti verðskuldaðs sumarleyfis heldur heilbrigðisþjónustan áfram allan sólarhringinn, alla daga ársins. Það er eitt af því sem gerir starf heilbrigðisstofnana svo sérstakt. Á bak við hverja opna heilsugæslustöð, hverja heimsókn á bráðamóttöku, hverja vakt á legudeild, hvert sjúkrabílaútkall og hverja vitjun í heimahjúkrun stendur öflugt teymi starfsfólks sem leggur metnað sinn í að veita örugga og góða þjónustu.
Núna á vormánuðum 2026 birtum við ársskýrslu HSU fyrir árið 2025. Skýrslan sýnir glögglega hversu víðtæk og fjölbreytt starfsemin er. Svo nokkrar starfsemistölur séu tíndar til, þá fæddust til dæmis 57 börn á HSU á síðasta ári sem tengdust 3.800 komum í mæðravernd, framkvæmdar voru 16.468 myndgreiningarrannsóknir og 1.114 einstaklingar voru lagðir inn á sjúkradeildir okkar. Þá voru rúmlega 4.100 samskipti við krabbameinslækna og yfir 1.600 viðtöl hjá sálfræðingum.
Þessar tölur skipta máli, en þær segja vitaskuld aðeins hluta sögunnar. Á bak við hverja þeirra er mikilvægur skjólstæðingur sem þurfti á aðstoð að halda og þrautþjálfað og vel menntað starfsfólk sem lagði sig allt fram um að mæta viðkomandi af fagmennsku, hlýju og virðingu. Það er einmitt þessi mannlegi þáttur sem skilgreinir starf HSU eins og annarra heilbrigðisstofnana og hann verður aldrei mældur í töflum eða gröfum. Við greindum þó á vormánuðum frá þeim niðurstöðum þjónustukönnunar hins opinbera, að HSU er meðal þeirra stofnana sem hafa sýnt mestar framfarir milli ára og taldist því til „hástökkvara ársins“.
Á árinu var áfram unnið af krafti eftir nýrri stefnu HSU til ársins 2030 þar sem áhersla er lögð á framsækna þjónustu, öflugan og eftirsóknarverðan vinnustað, sterka gæða- og öryggismenningu og ábyrgan rekstur. Sú stefna birtist ekki aðeins í markmiðum á blaði heldur í daglegu starfi starfsfólks okkar, í ákvörðunum sem teknar eru nærri vettvangi og í þeim fjölmörgu verkefnum sem ráðist hefur verið í á árinu.
Heilbrigðisþjónusta stendur frammi fyrir sífelldum breytingum. Íbúum fjölgar, samfélagið þróast og væntingar til þjónustunnar aukast. Um leið skapast ný tækifæri til að bæta þjónustuna og upplifun fólks af HSU með auknu samstarfi, nýrri þekkingu og skynsamlegri nýtingu nýjustu tækni.
Á síðustu mánuðum höfum við stigið mikilvæg tækniskref. Gervigreind er nú farin að styðja við myndgreiningu og getur hjálpað heilbrigðisstarfsfólki að greina ákveðin bráðatilvik hraðar. Á hjúkrunarheimilinu Móbergi hefur einnig verið tekin í notkun Teton-lausn sem styður við umönnun íbúa og eykur öryggi þeirra. Slík þróun snýst ekki um að tæknin taki við af fólki heldur að hún verði öflugt stoðtæki og dýrmætt verkfæri sem gefur starfsfólki meira svigrúm til þess sem skiptir mestu máli: að sinna mannlegum samskiptum með nærveru og vandaðri umönnun.
Samstarf hefur einnig verið áberandi sem rauður þráður í starfsemi HSU síðustu mánuði. Hópslysaæfing sem haldin var í vor minnti okkur á mikilvægi þess að heilbrigðisstarfsfólk, lögregla, slökkvilið, björgunarsveitir og aðrir viðbragðsaðilar æfi reglulega saman. Þegar raunveruleg áföll verða er enginn tími til að kynnast. Þá þarf samvinna, traust og verklag þegar að vera til staðar. Sama á við um áframhaldandi þróun bráðaviðbragðs í Öræfum þar sem kraftmikið og gefandi samstarf við heimafólk og aðra viðbragðsaðila styrkir öryggi íbúa og þá fjölmörgu ferðamenn sem heimsækja svæðið ár hvert.
Við höfum jafnframt haldið áfram að þróa þjónustu sem byggir á þverfaglegu samstarfi. Verkefnið Kraftmiklir krakkar er gott dæmi um það. Þar vinna ólíkir faghópar saman að því að styðja börn og fjölskyldur á heildstæðan hátt og auðvelda þeim að finna þá þjónustu sem þau þurfa. Slík verkefni minna okkur á að nýsköpun snýst ekki aðeins um tækni heldur einnig um nýjar leiðir til samstarfs í þágu fólksins sem við þjónustum.
Þegar ég heimsæki starfsstöðvar okkar, sem spanna allt Suðurland og dágóðan hluta Austurlands, er ég reglulega minnt á hversu ótrúlega fjölbreytt starfsemin er. Á einum stað er tekið á móti nýju lífi, á öðrum sinnt alvarlegum veikindum eða slysum og annars staðar tryggð umönnun og öryggi í daglegu lífi fólks. Verkefnin eru ólík en eiga það sameiginlegt að þar ræður för fagmennska, metnaður og einlægur vilji til að inna gott starf af hendi.
Mig langar að nota þetta tækifæri til að þakka öllu starfsfólki HSU fyrir framlag þess. Sumarmánuðirnir geta verið krefjandi. Ferðamönnum fjölgar, álag breytist og margt starfsfólk er í sumarleyfi, en þjónustan þarf eftir sem áður að ganga hnökralaust fyrir sig. Það tekst vegna þess að fólkið okkar sýnir dag eftir dag ábyrgð, framúrskarandi fagmennsku og mikinn sveigjanleika andspænis kröfuhörðum aðstæðum. Ég vil einnig á sama tíma þakka íbúum umdæmis HSU, sveitarfélögum og öllum samstarfsaðilum fyrir gott samstarf. Heilbrigðisþjónusta verður aldrei sterkari en tengslin sem hún á við samfélagið sem hún þjónar.
Í þessu tölublaði af Hjartanu í HSU lítum við yfir helstu tíðindi síðustu mánaða og þau fjölmörgu verkefni sem einkenna starfsemi okkar. Við höldum áfram inn í síðari hluta ársins með skýra sýn og metnað til að efla þjónustuna við íbúa umdæmisins. Markmiðið er óbreytt: að íbúar geti ávallt treyst HSU þegar á reynir. Það traust er verðmætasta eign okkar.
Díana Óskarsdóttir
forstjóri HSU