Nei og aftur nei

eythor_h_cr

Valdaframsal til Evrópusambandsins er eitt stærsta pólitíska álitaefni sem Íslendingar kunna að standa frammi fyrir á komandi árum. Ég hef meiri trú á Íslandi og íslensku samfélagi en svo að okkur sé betur borgið innan sambands sem glímir sjálft við margvíslegar áskoranir. Eflaust voru mörg og góð rök fyrir stofnun Evrópusambandsins og forvera þess. Ísland […]

Tíminn með vinunum stóð upp úr frá GRV

Útskrift 10. bekkinga markar tímamót í lífi margra ungmenna. Við fengum að heyra í nokkrum útskriftarnemum úr Grunnskóla Vestmannaeyja sem líta til baka á grunnskólaárin og segja frá því sem stendur upp úr, auk þess sem þau segja frá því sem tekur við í haust. Aron Sindrason er einn þeirra nemenda sem kvaddi Grunnskóla Vestmannaeyja í vor eftir tíu ára skólagöngu. Hann er sonur Sindra Ólafssonar og Hildar Sólveigar Sigurðardóttur og á tvær yngri systur, þær Söru Rós og Drífu. Þegar hann var ekki í skólanum fór stærstur hluti frítímans í fótboltann, sem er hans helsta áhugamál.  Aron lítur til baka með ánægju og segir grunnskólaárin hafa verið frábær. Nú tekur við nýr kafli í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum, sem hann hlakkar til að hefja.  Það sem stóð helst upp úr frá grunnskólanum er tíminn með vinunum og allt það skemmtilega sem þau gerðu saman.  Hann segir skemmtilegasta fagið hafa verið náttúrufræðitímarnir hjá Ernu Valtýrs, þar sem oft hafi verið mikil stemning.  […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.