Jón Óli á sínu þriðja ári með konurnar 

Kvennalið ÍBV er mætt aftur í Bestu deildina eftir tveggja ára fjarveru. Þær tryggðu sér sæti meðal þeirra bestu þegar þær rúlluðu yfir Lengjudeildina á síðasta tímabili. Eyjakonur hefja leik í deildinni laugardaginn 25. apríl þegar þær sækja Fram heim á Lambhagavöllinn. Deildin sjálf hefst föstudaginn 24. apríl með leik Íslandsmeistara Breiðabliks og Þróttar R. […]

Elliði Snær og Elmar í eldlínunni í Þýskalandi

2. Bundsliga: HSG Nordhorn-Lingen - TV Großwallstadt 25:25

Eyjamennirnir Elliði Snær Viðarsson og Elmar Erlingsson voru báðir í eldlínunni með sínum félagsliðum í þýska handboltanum í dag. Elliði Snær og félagar hans í Gummersbach unnu Bergischer á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni, 39-30. Elliði Snær skoraði þrjú mörk. Gummersbach er í fjórða sæti deildarinnar með 39 stig. Bergischer er með 14 stig í fimmtánda […]

Leik ÍBV og FH í Bestu deildinni flýtt

Leik ÍBV og FH í fyrstu umferð Bestu deildar karla, sem fer fram sunnudaginnn 12. apríl á Hásteinsvelli, hefur verið flýtt.  Leikurinn átti að fara fram kl. 17:00, eins og þrír aðrir leikir,  en hefur verið flýtt til kl. 13:00  samdægurs. Umferðin hefst föstudaginn 10. apríl með leik Íslandsmeistara Víkings Reykjavík og Breiðabliks og lýkur […]

ÍBV semur við leikmann frá Portúgal

Portúgalski leikmaðurinn Vítor Rocha Pisco hefur gengið til liðs við ÍBV í fótbolta og gerir eins árs samning við félagið. Hann lék áður með AD Sanjoanense og Karvan Yevklakh í Aserbaídsjan. ÍBV greindi frá tíðindunum á samfélagsmiðlum sínum í gær. Vítor er 29 ára miðjumaður og segir hann í tilkynningunni að hann sé ánægður með […]

Frábær skráning á sundnámskeið á vegum Vestmannaeyjabæjar

Vestmannaeyjabær setti á laggirnar sundnámskeið fyrir börn í 1. -4. bekk vegna lokunar á sundlauginni í vetur. Viðgerðir á sundlaugunni drógust og stóð lokunin yfir í nokkra mánuði. Af þeim sökum hafa grunnskólanemendur ekki getað stundað hefðbundið skólasund í vetur. Skráningin á námskeiðið gengur vel og eru hátt í hundrað börn skráð.  Fram kemur á […]

Aleksandar Linta nýr þjálfari Eyjamanna 

Karlalið ÍBV hefur leik í Bestu deildinni 12. apríl þegar liðið tekur á móti FH á  Hásteinsvelli. Aleksandar Linta var ráðinn þjálfari Eyjamanna fyrr á þessu ári. Linta er fimmtugur og kemur frá Serbíu. Hann bjó hér á landi í 15 ár en hann kom fyrst til Íslands árið 1997 til að spila með ÍA. […]

ÍBV úr leik eftir tap á Akureyri

Karlalið ÍBV í handbolta er úr leik í úrslitakeppni Olís deildar karla eftir tap gegn KA , í 8-liða úrslitum á Akureyri í dag. Leiknum lauk með eins marks sigri KA, 25-24, og því sigraði KA einvígið 2-0. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og skiptust liðin á að vera með forystuna. Eyjamenn náðu […]

ÍBV tapaði gegn Val í lokaleik Olís deildarinnar

Kvennalið ÍBV í handbolta tapaði gegn val á útivelli í lokaleik Olís deildar kvenna í dag. Leiknum lauk með 30-28 sigri Valskvenna. Valskonur byrjuðu leikinn betur og voru 6-3 yfir eftir tíu mínútur. Eyjakonur komu til baka og var staðan jöfn, 10-10, eftir 20 mínútna leik. Valskonur náðu aftur upp forystu sinni og leiddu í […]

Andri verður ekkert með í einvíginu gegn KA

Andri Erlingsson, leikmaður ÍBV í handbolta, verður ekki með ÍBV gegn KA á sunnudaginn í einvíginu milli þessara liða í 8-liða úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í Olís deild karla. Andri meiddist í seinni hálfleik gegn Fram í næst síðustu umferð Olís deildarinnar og missti af lokaumferðinni. Hann var ekki með ÍBV í fyrsta leiknum gegn KA […]

Heimir og Írar úr leik um sæti á HM

Heimir Hallgrímsson og lærisveinar hans í írska landsliðinu í fótbolta féllu úr leik í umspilinu um sæti á heimsmeistaraḿótinu í sumar, þegar þeir töpuðu gegn Tékklandi eftir vítaspyrnukeppni, á Fortuna Arena í Prag í kvöld.  Írland komst yfir eftir 19. mínútur þegar Troy Parrott skoraði af öryggi af vítapunktinum. Írar tvöfölduðu forystu sína fjórum mínútum […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.