ÍBV með bakið upp við vegg eftir tap gegn Val
Birna María Unnarsdóttir í baráttunni. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Kvennalið ÍBV í handbolta tapaði gegn Val, 23-25, í öðrum leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í Olís deild kvenna, í Eyjum í kvöld. Valskonur er því komnar í 2-0 í einvíginu og eru einum sigri frá Íslandsmeistaratitlinum. 

Valskonur byrjuðu leikinn betur og náðu fjögurra marka forystu, 2-6, á upphafs mínútum fyrri hálfleiks. Valskonur voru með yfirhöndina allan fyrri hálfleikinn og fóru með tveggja marka forskot inn í hálfleik. Staðan 13-15.

Eyjakonur voru að elta allan leikinn og komust Valskonur fimm mörkum yfir, 14-19, í upphafi síðari hálfleiks. Þegar stundarfjórðungur var eftir var staðan 18-24 en þá steig Ólöf Maren Bjarnadóttir, markavörður ÍBV, heldur betur upp og lokaði markinu. Eyjakonur náðu að minnka muninn niður í tvö mörk, 22-24, á lokakafla leiksins og fengu tækifæri til að minnka í eitt en Hafdís Renötudóttir, markvörður Vals, varði frá Ástu Björt Júlíusdóttur, þegar tæp mínútu var til leiksloka. Valskonur unnu að lokum nokkuð öruggan tveggja marka sigur. Lokatölur leiksins 23-25. 

Birna Berg Haraldsdóttir, leikmaður ÍBV,  var markahæst í leiknum ásamt Ásthildi Jónu Þórhallsdóttur, leikmanni Vals, með sjö mörk hvor. Ólöf Maren Bjarnadóttir átti mjög góðan leik í markinu hjá Eyjakonum og varði hún 15 skot. 

Mörk ÍBV: Birna Berg Haraldsdóttir 7 mörk, Sandra Erlingsdóttir 5, Britney Emilie Florianna Cots 3, Agnes Lilja Styrmisdóttir 3, Birna María Unnarsdóttir 2, Amelía Dís Einarsdóttir 2, Ásta Björt Júlíusdóttir 1, Ásdís Halla Hjarðar 1.

Næsti leikur í úrslitaeinvíginu fer fram á Hlíðarenda, laugardaginn 9. maí kl. 17:00. ÍBV stelpurnar þurfa nauðsynlega á sigri að halda ætli þær að eiga möguleika á Íslandsmeistaratitlinum. 

Nýjustu fréttir

Áfram Noregur í kvöld – Heimisáhrifin virka
Draumurinn orðinn að veruleika
Einstakt safn Magnúsar vakti forvitni á Goslokahátíð
Þrjár vikur í Þjóðhátíð – uppbyggingin hafin í Herjólfsdal
Sumarlesturinn hefur aldrei farið betur af stað
Áform um þrjú ný einbýlishús við Reglubraut
Evrópusambandið, meira en tollabandalag
50 ár frá opnun sundlaugar Vestmannaeyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.