Áfall fyrir ÍBV - Amalia Frøland með slitið krossband
Amalia Frøland í undanúrslitaleiknum gegn Haukum. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Amalia Frøland markvörður kvennaliðs ÍBV í handbolta verður ekkert með í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitillinn gegn Val í úrslitakeppni Olís deildar kvenna.

Amalia meiddist í undanúrslitaleik liðsins gegn Haukum í síðari framlengingu leiksins og var strax ljóst að um alvarleg meiðsli væri að ræða. Það hefur nú komið í ljós að hún er með slitið fremra krossband í hné og verður hún ekkert með næstu mánuðina. 

Amalia hefur verið einn af bestu markvörðum Olís deildarinnar og er því ljóst að þetta er mikið áfall fyrir ÍBV. Ólöf Maren Bjarnadóttir er varamarkvörður liðsins en hún hefur átt frábærar innkomur í úrslitakeppninni og hjálpaði liðinu að komast í úrslitaeinvígið.

Fyrsti leikur ÍBV í úrslitaeinvíginu gegn Val fer fram á Hlíðarenda á laugardaginn kl. 15:00.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.