ÍBV enn án sigurs eftir tap gegn Blikum
Liam Daði Jeffs í leiknum í dag en hann kom Eyjamönnum í 1-0. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Karlalið ÍBV í fótbolta tapaði 1-2 gegn Breiðablik í fimmtu umferð Bestu deildar karla á Hásteinsvelli í dag. 

Eyjamenn byrjuðu leikinn af krafti og komust í 1-0 eftir aðeins fjórtán sekúndur. Þar var að verki Liam Daði Jeffs en hann setti góða pressu á Anton Ara, markvörð Breiðabliks, sem var alltof lengi að athafna sig. Boltinn barst á Róbert Elís Hlynsson sem gerði vel og kom boltanum fyrir markið og Liam Daði setti boltann í netið. Liam Daði að skora sitt fyrsta mark í efstu deild. Blikarnir jöfnuðu eftir um það bil tuttugu mínútna leik þegar Kristófer Ingi Kristinsson skoraði með skalla eftir fyrirgjöf Davíðs Ingvarssonar. Staðan 1-1 í hálfleik. 

Blikar skoruðu sigurmark leiksins á 58. mínútu leiksins þegar Viktor Karl Einarsson skoraði af stuttu færi eftir undirbúning Kristófers Inga Kristinssonar. Pisco komst næst því að jafna fyrir Eyjamenn í síðari hálfleik þegar hann tók viðstöðulaust skot eftir hornspyrnu en Anton Ari náði að verja frá honum. Lokatölur leiksins 1-2.

Eyjamenn eru enn án sigurs eftir fimm leiki og verma botnsætið með eitt stig. Blikar eru í þriðja sæti með 11 stig. 

Næsti leikur ÍBV er gegn KA, á Akureyri, sunnudaginn 10. maí kl. 17:00.

ÍBV 1 – 2 Breiðablik
1-0 Liam Daði Jeffs (‘1 )
1-1 Kristófer Ingi Kristinsson (’21 )
1-2 Viktor Karl Einarsson (’58 )

Nýjustu fréttir

Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Haraldur Dúi
Fimmti flokkur drengja ÍBV tók þátt í N1 mótinu á Akureyri
Skipaumferð setti svip á höfnina í dag
Eyjasundinu flýtt vegna veðurs
Þrjú álitaefni réðu úrslitum í vatnslagnarmálinu
ÍBV vann Val í Goslokaleik
Svipmyndir frá líflegum laugardegi á Goslokahátíð
Goslok: dagskrá sunnudags
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.