Frábær endurkomusigur ÍBV gegn Víkingi
Stelpurnar fagna einu af mörkum sínum í dag. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Kvennalið ÍBV í fótbolta vann frábæran 3-2 endurkomusigur á Víkingi Reykjavík, eftir að hafa verið 0-2 undir í hálfleik, í annarri umferð Bestu deildar kvenna á Hásteinsvelli í dag.

Víkings konur byrjuðu leikinn mun betur en þær léku með vindinn í bakið í fyrri hálfleik. Bergdís Sveinsdóttir, leikmaður Víkings, var nálægt að koma gestunum yfir þegar hún fékk boltann í gegn en markvörður ÍBV, Arden Joy La-Rose, varði frábærlega frá henni. Aðeins fimm mínútum síðar fékk ÍBV dæmda á sig vítaspyrnu sem Bergdís Sveinsdóttir skoraði örugglega úr og kom Víkingum í 0-1. Fimm mínútum síðar tvöfaldaði Jasmín Erla Ingadóttir forystu Víkings kvenna þegar hún skoraði af stuttu færi eftir undirbúning Emmu Steinsen. Staðan 0-2 í hálfleik. 

Allison Patricia Clark gerði sigurmark ÍBV

Eyjakonur komu af krafti inn í síðari hálfleikinn og minnkuðu muninn á 50. mínútu leiksins. ÍBV fékk þá aukaspyrnu á miðjum vellinum sem Sandra Voitane tók. Frábær bolti hjá Söndru á fyrirliðann, Avery Mae Vanderven, sem tók hann snyrtilega niður inn á teignum og kláraði svo örugglega í netið. Staðan 1-2. Aðeins mínútu síðar slapp Olga Sevcova í gegn eftir klaufagang í vörn Víkinga. Hún skoraði af öryggi framhjá markverði Víkinga og jafnaði leikinn fyrir ÍBV. Kristín Erla Ó Johnson, leikmaður Víkings, fékk að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt, á 64. mínútu og Eyjakonur því einum manni fleiri það sem eftir lifði leiks. Sigurmarkið lá í loftinu hjá ÍBV og kom það á 83. mínútu. Boltinn barst þá á Allison Clark fyrir utan teig Víkinga og hún tók skotið sem endaði í netinu. Lokatölur leiksins 3-2.

Eyjakonur eru eftir tvær umferðir með fullt hús stiga, sex stig, rétt eins og Breiðablik á toppi deildarinnar. Víkingur er í fimmta sæti með þrjú stig. 

ÍBV mætir Val, á Hlíðarenda, í næsta leik sínum í Bestu deild kvenna, miðvikudaginn 6. maí kl. 18:00.

ÍBV 3 – 2 Víkingur R.

0-1 Bergdís Sveinsdóttir (’21 , víti)

0-2 Jasmín Erla Ingadóttir (’25 )

1-2 Avery Mae Vanderven (’50 )

2-2 Olga Sevcova (’51 )

3-2 Allison Patricia Clark (’83 )

Rautt spjald: Kristín Erla Ó Johnson, Víkingur Reykjavík (’64)

Nýjustu fréttir

Dreymir um að verða lögreglumaður
Þarf kjark til að fara á karlaráðstefnu?
Hákon hlakkar mest til að læra sund
Trúfesti Guðs rauði þráðurinn í 100 ára sögu
Binni Þór gerir tveggja ára samning við ÍBV
Mikill spenningur fyrir komandi tímabili
Gætu sparað hundruð milljóna ef grjótið reynist vel
Viljayfirlýsing undirrituð um samstarf vegna Eyjaganga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.