Valur vann ÍBV í fyrsta leik í úrslitaeinvíginu
Úr leik ÍBV og Hauka. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Kvennalið ÍBV í handbolta tapaði 39-33 gegn Val í fyrsta leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitillinn á hlíðarenda í dag. 

Algjört jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og var staðan eftir stundarfjórðung 11-11. Liðin skiptust á að vera með forystuna en Eyjakonur voru sterkari á lokakafla fyrri hálfleiks og náðu þriggja marka forskoti, 17-20, þegar fjórar mínútur voru í hálfleiks flautið. ÍBV leiddi með tveimur mörkum í hálfleik, 18-20.

Eyjakonur byrjuðu síðari hálfleikinn gríðarlega sterkt og náðu sex marka forystu á upphafs mínútunum, staðan 19-25. Valskonur rifu sig í gang næstu mínútur og var allt orðið jafnt, 28-28, þegar stundarfjórðungur var til leiksloka. Staðan var enn jöfn, 32-32, þegar rúmlega fimm mínútur voru eftir en síðustu mínútur leiksins gekk allt á afturfótunum hjá ÍBV. Valskonur unnu að lokum sex marka sigur. Lokatölur leiksins 39-33 Valskonum í vil.

Valskonur eru því komnar í 1-0 í úrslitaeinvíginu en næsti leikur milli liðanna fer fram á næsta þriðjudag, í Vestmannaeyjum kl. 18:00.

Sandra Erlingsdóttir bar sóknarleik ÍBV uppi í leiknum og var hún markahæst með 14 mörk. 

Mörk ÍBV: Sandra Erlingsdóttir 14 mörk, Agnes Lilja Styrmisdóttir 4, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 4, Birna Berg Haraldsdóttir 4, Amelía Dís Einarsdóttir 3, Ásdís Halla Hjarðar 2, Birna María Unnarsdóttir 1, Britney Emilie Florianna Cots 1. 

 

Nýjustu fréttir

Herjólfur til Þorlákshafnar
„Fjölskyldan fullyrðir að ég sé að verða níræður“ – Svabbi býður til afmælisveislu
Lára Skærings er óhrædd við að prófa nýja hluti  
Íslendingur vann 336 milljónir!
Stefnir á meistarann eftir sveinspróf í veiðarfæratækni
Rúmlega áttræð vann rúmar 130 milljónir
Vísnagátur eftir Sigurgeir
Hlustaðu á þjóðhátíðarlagið 2026
viðburðir
Sa Portret 02022026 1
27. maí 2026
08:30
Hringferð SA í Akóges-salnum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.