The Puffin Run fór fram í dag í blíðskaparveðri
Ljósmynd/Óskar. P Friðriksson

Utanvegahlaupið The Puffin Run fór fram í blíðskaparveðri í Vestmannaeyjum í dag. Um 700 manns tóku þátt í hlaupinu, bæði í einstaklingshlaupi og boðhlaupi. Arnar Pétursson og Andrea Kolbeinsdóttir stóðu uppi sem sigurvegarar í hlaupinu. 

Arnar Pétursson kom fyrstur í mark í karlaflokki á tímanum 1:15:10 en þetta var í fjórða skipti sem hann vinnur hlaupið. Þorbergur Ingi Jónsson varð annar á tímanum 1:16:30 og Sigurjón Ernir Sturluson þriðji á tímanum 1:20:20.

Andrea Kolbeinsdóttir kom fyrst í mark í kvennaflokki á tímanum 1:20:00 og stórbætti hún sitt eigið brautarmet. Halldóra Huld Ingvarsdóttir kom önnur í mark á tímanum 1:25:22 og Elísa Kristinsdóttir þriðja á 1:27:03. 

Hér er hægt að sjá alla tímana í hlaupinu.

Óskar Pétur Friðriksson tók myndir í hlaupinu í dag:

 

 

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Ólögmætar uppsagnir, óveður og góðgerð í fullri Höll
Bleik messa í Landakirkju
Seinni ferðir Herjólfs falla niður vegna veðurs og sjólags
„Vestmannaeyjar eru hluti af Suðurkjördæmi alla daga ársins“
Locomotive Breath flutt til heiðurs Jóa Listó
Áhyggjur af fjölda barna sem bíða eftir greiningu
Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.