Sandra náði áfanga með íslenska landsliðinu

Eyjakonan og leikmaður ÍBV, Sandra Erlingsdóttir, náði stórum áfanga með íslenska landsliðinu í handbolta, í leiknum gegn Færeyjum síðastliðinn miðvikudag, í undankeppni EM 2026. Hún varð sú fjórtánda til þess að skora 200 mörk fyrir íslenska landsliðið en hún skoraði sjö mörk í tapleiknum gegn Færeyjum, sex þeirra komu af vítapunktinum. Hún hefur nú skorað […]
Kvennalið ÍBV semur við markmann frá Kanada-Guyana

Knattspyrnudeild ÍBV hefur samið við Arden La-Rose, 23 ára markmann frá Kanada-Guyana, um að leika með kvennaliðinu á næstu leiktíð. ÍBV greindi frá á samfélagsmiðlum sínum fyrr í dag. ,,Hún spilaði með Ohio State Buckeyes en samhliða fótboltanum stundaði hún frjálsar íþróttir og þótti ansi góður hlaupari. Arden kemur einnig með reynslu úr yngri landsliðum […]
Tap hjá Arnari og íslenska landsliðinu gegn Færeyjum

Eyjamaðurinn Arnar Pétursson og stelpurnar í íslenska landsliðinu í handbolta mættu Færeyjum í undankeppni EM kvenna 2026, í Þórshöfn í dag. Leiknum lauk með fimm marka sigri Færeyja og voru lokatölur leiksins 35-30. Fyrri hálfleikurinn var mjög jafn en staðan var 18-16, Færeyjum í vil í hálfleik. Færeyska liðið var töluvert sterkara í síðari hálfleik […]
Atli Steinn Arnarson semur við ÍBV

Handknattleiksdeild ÍBV hefur samið við Atla Stein Arnarson og mun hann ganga til liðs við ÍBV fyrir næstu leiktíð. ÍBV greindi frá tíðindunum á samfélagsmiðlum sínum fyrr í dag. Í tilkynningunni segir ,,Atli er 22 ára rétthent skytta og hefur leikið með yngri landsliðum Íslands og er því gríðarlega spennandi viðbót við hópinn”. Atli kemur […]
Díana Dögg og Andrea deildarmeistarar í Þýskalandi

Eyjakonan, Díana Dögg Magnúsdóttir og Andrea Jacobsen, tilvonandi leikmaður ÍBV, urðu deildarmeistarar með Blomberg-Lippe, í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Þær tryggðu sér efsta sætið í þýsku úrvalsdeildinni með tveggja marka sigri, 33-31, á Borussia Dortmund. Fyrir leikinn var Dortmund á toppnum með 35 stig og Blomberg-Lippe með 34 stig í öðru sæti en […]
ÍBV úr leik í Mjólkurbikarnum

Karlalið ÍBV í fótbolta tók á móti Þrótti Reykjavík í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í Eyjum í dag. Þróttur bar sigur úr býtum eftir vítaspyrnukeppni. Lokatölur eftir venjulegan leiktíma var 2-2 en Þróttur komst tvívegis yfir í leiknum. Adam Árni Róbertsson kom Þrótti yfir á 28. mínútu leiksins þegar hann stangaði hornspyrnu Sigurðar Egils Lárussonar í […]
ÍBV semur við serbneskan framherja

Knattspyrnudeild ÍBV hefur samið við serbneska leikmanninn Filip Stuparevic. ÍBV greindi frá á samfélagsmiðlum sínum í gær. Filip er 25 ára framherji og kemur með reynslu víða úr Evrópu. Í tilkynningunni segir ,,Filip hefur meðal annars spilað með FK Vozdovac, FK Metalac, FK Pribram, NK Domzale, Greenock Morton og Motherwell FC. Hann hefur gott orð […]
Jón Óli á sínu þriðja ári með konurnar

Kvennalið ÍBV er mætt aftur í Bestu deildina eftir tveggja ára fjarveru. Þær tryggðu sér sæti meðal þeirra bestu þegar þær rúlluðu yfir Lengjudeildina á síðasta tímabili. Eyjakonur hefja leik í deildinni laugardaginn 25. apríl þegar þær sækja Fram heim á Lambhagavöllinn. Deildin sjálf hefst föstudaginn 24. apríl með leik Íslandsmeistara Breiðabliks og Þróttar R. […]
Elliði Snær og Elmar í eldlínunni í Þýskalandi

Eyjamennirnir Elliði Snær Viðarsson og Elmar Erlingsson voru báðir í eldlínunni með sínum félagsliðum í þýska handboltanum í dag. Elliði Snær og félagar hans í Gummersbach unnu Bergischer á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni, 39-30. Elliði Snær skoraði þrjú mörk. Gummersbach er í fjórða sæti deildarinnar með 39 stig. Bergischer er með 14 stig í fimmtánda […]
Leik ÍBV og FH í Bestu deildinni flýtt

Leik ÍBV og FH í fyrstu umferð Bestu deildar karla, sem fer fram sunnudaginnn 12. apríl á Hásteinsvelli, hefur verið flýtt. Leikurinn átti að fara fram kl. 17:00, eins og þrír aðrir leikir, en hefur verið flýtt til kl. 13:00 samdægurs. Umferðin hefst föstudaginn 10. apríl með leik Íslandsmeistara Víkings Reykjavík og Breiðabliks og lýkur […]