ÍBV semur við leikmann frá Portúgal

Portúgalski leikmaðurinn Vítor Rocha Pisco hefur gengið til liðs við ÍBV í fótbolta og gerir eins árs samning við félagið. Hann lék áður með AD Sanjoanense og Karvan Yevklakh í Aserbaídsjan. ÍBV greindi frá tíðindunum á samfélagsmiðlum sínum í gær. Vítor er 29 ára miðjumaður og segir hann í tilkynningunni að hann sé ánægður með […]
Frábær skráning á sundnámskeið á vegum Vestmannaeyjabæjar

Vestmannaeyjabær setti á laggirnar sundnámskeið fyrir börn í 1. -4. bekk vegna lokunar á sundlauginni í vetur. Viðgerðir á sundlaugunni drógust og stóð lokunin yfir í nokkra mánuði. Af þeim sökum hafa grunnskólanemendur ekki getað stundað hefðbundið skólasund í vetur. Skráningin á námskeiðið gengur vel og eru hátt í hundrað börn skráð. Fram kemur á […]
Aleksandar Linta nýr þjálfari Eyjamanna

Karlalið ÍBV hefur leik í Bestu deildinni 12. apríl þegar liðið tekur á móti FH á Hásteinsvelli. Aleksandar Linta var ráðinn þjálfari Eyjamanna fyrr á þessu ári. Linta er fimmtugur og kemur frá Serbíu. Hann bjó hér á landi í 15 ár en hann kom fyrst til Íslands árið 1997 til að spila með ÍA. […]
ÍBV úr leik eftir tap á Akureyri

Karlalið ÍBV í handbolta er úr leik í úrslitakeppni Olís deildar karla eftir tap gegn KA , í 8-liða úrslitum á Akureyri í dag. Leiknum lauk með eins marks sigri KA, 25-24, og því sigraði KA einvígið 2-0. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og skiptust liðin á að vera með forystuna. Eyjamenn náðu […]
ÍBV tapaði gegn Val í lokaleik Olís deildarinnar

Kvennalið ÍBV í handbolta tapaði gegn val á útivelli í lokaleik Olís deildar kvenna í dag. Leiknum lauk með 30-28 sigri Valskvenna. Valskonur byrjuðu leikinn betur og voru 6-3 yfir eftir tíu mínútur. Eyjakonur komu til baka og var staðan jöfn, 10-10, eftir 20 mínútna leik. Valskonur náðu aftur upp forystu sinni og leiddu í […]
Andri verður ekkert með í einvíginu gegn KA

Andri Erlingsson, leikmaður ÍBV í handbolta, verður ekki með ÍBV gegn KA á sunnudaginn í einvíginu milli þessara liða í 8-liða úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í Olís deild karla. Andri meiddist í seinni hálfleik gegn Fram í næst síðustu umferð Olís deildarinnar og missti af lokaumferðinni. Hann var ekki með ÍBV í fyrsta leiknum gegn KA […]
Heimir og Írar úr leik um sæti á HM

Heimir Hallgrímsson og lærisveinar hans í írska landsliðinu í fótbolta féllu úr leik í umspilinu um sæti á heimsmeistaraḿótinu í sumar, þegar þeir töpuðu gegn Tékklandi eftir vítaspyrnukeppni, á Fortuna Arena í Prag í kvöld. Írland komst yfir eftir 19. mínútur þegar Troy Parrott skoraði af öryggi af vítapunktinum. Írar tvöfölduðu forystu sína fjórum mínútum […]
Heimir mætir með Írland í umspilsleik í kvöld

Eyjamaðurinn Heimir Hallgrímsson mætir með Írland til leiks í umspilsleik um sæti á heimsmeistaramótinu í fótbolta í kvöld. Írar mæta Tékklandi á útivelli í fyrri umspilsleiknum. Ef þeir vinna þann leik munu þeir mæta Danmörku eða Norður-Makedóníu í hreinum úrslitaleik um sæti á heimsmeistaramótinu í sumar sem fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og og Mexikó, […]
Grátlegt tap ÍBV gegn KA í tvíframlengdum leik

Karlalið ÍBV í handbolta tapaði gegn KA í fyrsta leik í einvíginu milli þessara liða, í 8-liða úrslitum úrslitakeppni Olís deildar karla um íslandsmeistaratitillinn, í Eyjum í kvöld. Leiknum lauk með 33-34 sigri KA eftir tvíframlengdan leik. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en KA menn voru yfir eftir stundarfjórðung, 5-6. KA menn spiluðu […]
ÍBV vann Val í æfingaleik

Karlalið ÍBV í fótbolta lagði Val að velli fyrr í dag í æfingaleik í Egilshöll. Leiknum lauk með 2-1 sigri ÍBV. Valur leiddi með einu marki í hálfleik með marki frá Degi Erni Garðarssyni. Eyjamenn skoruðu tvö mörk í síðari hálfleik. Mörk ÍBV skoruðu Bjarki Björn Gunnarsson og Mathias Edeland. Stutt er í að Besta […]