Heimir og Írar úr leik um sæti á HM
Heimir Hallgrímsson.

Heimir Hallgrímsson og lærisveinar hans í írska landsliðinu í fótbolta féllu úr leik í umspilinu um sæti á heimsmeistaraḿótinu í sumar, þegar þeir töpuðu gegn Tékklandi eftir vítaspyrnukeppni, á Fortuna Arena í Prag í kvöld. 

Írland komst yfir eftir 19. mínútur þegar Troy Parrott skoraði af öryggi af vítapunktinum. Írar tvöfölduðu forystu sína fjórum mínútum síðar þegar boltinn hrökk af baki Matej Kovár, markverði Tékka, í eigið mark. Patrik Schick minnkaði muninn fyrir Tékkland á 27. mínútu með marki af vítapunktinum. Allt virtist stefna í sigur Írlands en þegar fjórar mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma jafnaði Ladislav Krejcí leikinn fyrir Tékka. Lokatölur eftir venjulegan leiktíma 2-2. 

Engin mörk voru skoruð í framlengunni og því kom að vítaspyrnukeppni. Írar skoruðu úr þremur spyrnum af fimm og Tékkar fjórum. Tékkland leikur því hreinan úrslitaleik um sæti á HM í sumar, gegn Dönum sem lögðu Norður-Makedóníu að velli 4-0.

Nýjustu fréttir

Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Þakkir frá Krabbavörn Vestmannaeyja
Deloitte tekur við endurskoðun Vestmannaeyjabæjar
Prjónuðu 83 húfur gegn einelti
Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.