ÍBV semur við leikmann frá Portúgal
Vítor Rocha Pisco. Mynd/ ÍBV knattspyrna

Portúgalski leikmaðurinn Vítor Rocha Pisco hefur gengið til liðs við ÍBV í fótbolta og gerir eins árs samning við félagið. Hann lék áður með AD Sanjoanense og Karvan Yevklakh í Aserbaídsjan. ÍBV greindi frá tíðindunum á samfélagsmiðlum sínum í gær.

Vítor er 29 ára miðjumaður og segir hann í tilkynningunni að hann sé ánægður með að samþykkja eins árs samning við ÍBV og lítur á það sem frábært tækifæri til að efla atvinnumannaferil sinn. 

,,Ísland er frábært land og ÍBV er metnaðarfullt félag með mikla sögu”.

Þrátt fyrir að koma úr mun hlýrra loftslagi hefur hann engar áhyggjur af íslensku veðri. Honum hefur verið tekið mjög vel og hlakkar til að hefja tímabilið. Hann nefndi þó að hann hafi aldrei séð jafn mikinn snjó.

ÍBV hefur tímabilið í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins á laugardaginn gegn Þrótti Reykjavík. Leikurinn hefst kl 12:00 á Hásteinsvelli.

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.