Karlalið ÍBV í handbolta tapaði gegn KA í fyrsta leik í einvíginu milli þessara liða, í 8-liða úrslitum úrslitakeppni Olís deildar karla um íslandsmeistaratitillinn, í Eyjum í kvöld. Leiknum lauk með 33-34 sigri KA eftir tvíframlengdan leik.
Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en KA menn voru yfir eftir stundarfjórðung, 5-6. KA menn spiluðu betur seinna hluta fyrri hálfleiks og komust mest þremur mörkum yfir, 9-12. KA menn leiddu í hálfleik með tveimur mörkum. Staðan í hálfleik 11-13.
KA menn héldu forystu sinni í síðari hálfleik og voru með yfirhöndina. Erlingur Birgir Richardsson, þjálfari ÍBV, fékk að líta rauða spjaldið þegar stundarfjórðungur var eftir og Róbert Sigurðsson, leikmaður ÍBV, einnig fimm mínútum síðar.
Eyjamenn gerðu vel og jöfnuðu leikinn þegar tíu mínútur voru til leiksloka í 21-21. Lokamínútur venjulegs leiktíma voru hnífjafnar. ÍBV komst tveimur mörkum yfir þegar aðeins tvær mínútur voru eftir en KA menn jöfnuðu leikinn í 26-26 fyrir lokaflautið. Allt jafnt og því þurfti að framlengja.
Staðan var aftur jöfn eftir fyrri framlenginguna, 31-31, en KA menn voru sterkari í seinni framlengingunni og unnu að lokum eins marks sigur. Lokatölur leiksins 33-34.
Dagur Arnarsson, leikmaður ÍBV, var markahæstur með tíu mörk. Petar Jokanovic varði 20 skot í marki ÍBV.
Mörk ÍBV: Dagur Arnarsson 10 mörk, Elís Þór Aðalsteinsson 7, Sveinn José Rivera 5, Anton Frans Sigurðsson 3, Daníel Þór Ingason 3, Kristófer Ísak Bárðarson 2, Nökkvi Dan Óðinsson 2, Sigtryggur Daði Rúnarsson 2.
Valur og HK áttust einning við í kvöld í 8-liða úrslitum. Valur vann fjögurra marka sigur, 42-38.
ÍBV sækir KA heim á Akureyri í öðrum leik í einvíginu, sunnudaginn 29. mars kl. 15:00. Eyjamenn eru með bakið upp við vegg og þurfa nauðsynlega á sigri að halda. Takist KA að vinna tryggja þeir sér sæti í undanúrslitum.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.