Sandra náði áfanga með íslenska landsliðinu
Sandra Erlingsdóttir. Mynd/HSÍ

Eyjakonan og leikmaður ÍBV, Sandra Erlingsdóttir, náði stórum áfanga með íslenska landsliðinu í handbolta, í leiknum gegn Færeyjum síðastliðinn miðvikudag, í undankeppni EM 2026. Hún varð sú fjórtánda til þess að skora 200 mörk fyrir íslenska landsliðið en hún skoraði sjö mörk í tapleiknum gegn Færeyjum, sex þeirra komu af vítapunktinum. Hún hefur nú skorað 200 mörk í 48 landsleikjum. Handbolti.is greinir frá þessu.

Sandra og stöllur hennar í íslenska landsliðinu mæta Portúgal í hreinum úrslitaleik um þriðja sætið í riðli fjögur, í undankeppni EM kvenna í handbolta á sunnudaginn kl. 16:00. Fyrir leikinn er Portúgal í þriðja sæti riðilsins með fjögur stig en Ísland í neðsta sætinu með tvö stig.

 

Markahæstu leikmenn íslenska landsliðsins í handbolta:

Hrafnhildur Ósk Skúladóttir  – 620 mörk

Hanna Guðrún Stefánsdóttir  – 458 mörk

Þórey Rósa Stefánsdóttir – 413 mörk

Guðríður Guðjónsdóttir – 372 mörk

Karen Knútsdóttir – 371 mörk

Rakel Dögg Sigmarsdóttir – 304 mörk

Arna Sif Pálsdóttir –  282 mörk

Dagný Skúladóttir –  274 mörk

Halla María Helgadóttir – 273 mörk

Rut Arnfjörð Jónsdóttir – 249 mörk

Thea Imani Sturludóttir – 224 mörk

Anna Úrsúla Guðmundsdóttir – 224 mörk

Stella Sigurðardóttir – 205 mörk

Sandra Erlingsdóttir – 200 mörk

Nýjustu fréttir

Ábending frá Herjólfi
ÍBV og Þór jöfn að stigum fyrir leik kvöldsins
Snorri Steinn velur landsliðshópinn fyrir undankeppni EM – Elliði Snær með
Breki VE tekur þátt í haustralli Hafró
Gul viðvörun fyrir allt landið á sunnudag
Áhyggjur af fjármögnun Herjólfs og Landeyjahafnar
Boða átak vegna gáma og númerslausra bíla
Tvær ferðir til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.