ÍBV úr leik í Mjólkurbikarnum
Róbert Elís Hlynsson fagnar jöfnunarmarki sínu í dag. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson

Karlalið ÍBV í fótbolta tók á móti Þrótti Reykjavík í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í Eyjum í dag. Þróttur bar sigur úr býtum eftir vítaspyrnukeppni.

Lokatölur eftir venjulegan leiktíma var 2-2 en Þróttur komst tvívegis yfir í leiknum. Adam Árni Róbertsson kom Þrótti yfir á 28. mínútu leiksins þegar hann stangaði hornspyrnu Sigurðar Egils Lárussonar í netið. Staðan 0-1 í hálfleik. 

Sigurður Arnar Magnússon jafnaði leikinn fyrir Eyjamenn í upphafi síðari hálfleiks eftir klafs í teig Þróttar. Það tók Þróttara ekki langan tíma að komast aftur yfir en aðeins tveimur mínútum eftir að Eyjamenn jöfnuðu var Adam Árni aftur á ferðinni fyrir Þrótt. Hann fékk þá sendingu inn á teig ÍBV og kláraði færið af mikilli yfirvegun. Eyjamenn þurftu að bíða eftir jöfnunarmarkinu en það kom á 84. mínútu þegar varamaðurinn Róbert Elís Hlynsson skallaði boltann í netið eftir frábæra sendingu Vicente Valor. Staðan eftir venjulegan leiktíma 2-2 og því þurfti að framlengja.

Hvorugt liðið náði að skora í framlengingunni og því þurfti vítaspyrnukeppni til að knýja fram sigurvegara. Þróttarar höfðu betur en Þórhallur Ísak Guðmundsson, markvörður Þróttar, var hetja leiksins með tvær markvörslur. Þróttur skoraði úr fjórum spyrnum en Eyjamenn aðeins tveimur.

Þróttur Reykjavík er því komið áfram í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins en Eyjamenn sitja eftir með sárt ennið.

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.