Díana Dögg og Andrea deildarmeistarar í Þýskalandi

Eyjakonan, Díana Dögg Magnúsdóttir og Andrea Jacobsen, tilvonandi leikmaður ÍBV, urðu deildarmeistarar með Blomberg-Lippe, í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Þær tryggðu sér efsta sætið í þýsku úrvalsdeildinni með tveggja marka sigri, 33-31, á Borussia Dortmund. Fyrir leikinn var Dortmund á toppnum með 35 stig og Blomberg-Lippe með 34 stig í öðru sæti en […]

Gleði og góð mæting á páskaeggjaleitinni – myndir

Mikil þátttaka var í árlegri páskaeggjaleit Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum sem fram fór á Skansinum í dag. Mæting var góð og börn á öllum aldri nutu samveru og útivistar í blíðskaparveðri. Leitin hófst stundvíslega klukkan 15:00, þar sem þátttakendur höfðu safnast saman við virkið á Skansinum og biðu eftir merki um að hefja leitina. Eyþór Harðarson, […]

Viðvörun fyrir allt landið á annan í páskum

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir landið allt. Austan stórhríð á mánudag og tekur viðvörunin gildi kl. 08:00 á annan í páskum og gildir fram á aðfaranótt þriðjudags kl. 04:00. Í viðvörunarorðum segir: Gengur í austan á 18-28 m/s, hvassast syðst, en hægari vindur norðanlands fram eftir degi. Spáð er talsverðri eða mikilli […]

ÍBV úr leik í Mjólkurbikarnum

Karlalið ÍBV í fótbolta tók á móti Þrótti Reykjavík í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í Eyjum í dag. Þróttur bar sigur úr býtum eftir vítaspyrnukeppni. Lokatölur eftir venjulegan leiktíma var 2-2 en Þróttur komst tvívegis yfir í leiknum. Adam Árni Róbertsson kom Þrótti yfir á 28. mínútu leiksins þegar hann stangaði hornspyrnu Sigurðar Egils Lárussonar í […]

Landeyjahöfn opnar á ný – uppfært

Herjólfur stefnir á að sigla eina ferð til Landeyjahafnar síðdegis í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skipafélaginu. Brottför frá Vestmannaeyjum verður kl. 17:00, en áður hafði verið áætlað að sigla kl. 16:00. Brottför frá Landeyjahöfn verður kl. 20:00, en áður hafði verið áætlað að sigla kl. 19:45. Varðandi siglingar á morgun verður tilkynning […]

Betel við Faxastíg – trúarlíf og mannlíf í heila öld 

Betel, áður kirkja Hvítasunnusafnaðarins í Vestmannaeyjum, hefur staðið við Faxastíg 6 þar sem húsið stendur enn í dag, nánast í upprunalegri mynd. Húsið gegnir nú nýju hlutverki sem gistiheimili en um áratugaskeið var það miðstöð safnaðarstarfs og trúarlífs Hvítasunnumanna í Vestmannaeyjum. Í millitíðinni var þar leikskóli og upptökuver þar sem m.a. hljómsveitin Mezzoforte tók upp plötu árið […]

Listaverk Ólafs Elíassonar

Undanfarið hafa staðið yfir framkvæmdir við listaverk Ólafs Elíassonar á Nýja hrauni. Fram kemur á vef Vestmannaeyjabæjar að mikil spenna ríki fyrir fyrri áfanga listaverks Ólafs. „Framkvæmdir standa nú yfir og felst þessi áfangi í uppsetningu skála sem var komið fyrir á sínum endanlega stað föstudaginn 27. mars síðastliðinn. Áætlað er að hafa athöfn og […]

Páskaball í Höllinni í kvöld

Hið árlega páskaball fer fram í Höllinni í kvöld, laugardaginn 4. apríl og hefst kl 23:00. Að þessu sinni koma fram tónlistarmennirnir Aron Can, Daniil og Ízleifur, auk DJ sem sér um tónlistina yfir kvöldið. Búast má við góðri mætingu eins og síðastliðin ár, en ballið er orðinn fastur liður í skemmtanalífi Eyjamanna yfir páskana. […]

Framboðslisti kjósenda í Eyjum

Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar liggur nú fyrir. Raðað var í öll efstu sæti listans með prófkjöri en 12 efstu sæti listans eru byggð  niðurstöðu gríðarlega vel heppnaðs prófkjörs, þar sem nærri 1200 kjósendur í Eyjum komu að því að stilla frambjóðendum upp á listann með vali sínu í prófkjörinu. 1178 kjósendur skipuðu eiginlega kjörnefnd […]

ÍBV mætir Þrótti í bikarnum

32-liða úrslit Mjólkurbikars karla eru leikin nú um páskana – allir leikirnir nema einn. ÍBV hefur leik í Mjólkurbikarnum í dag þegar liðið tekur á móti Þrótti Reykjavík á Hásteinsvelli. Leikurinn hefst klukkan 12:00 og markar upphaf fyrsta alvöru keppnisleiks Eyjamanna á tímabilinu. Upphitun hefst klukkustund fyrir leik. Undirbúningur liðsins hefur staðið yfir undanfarna mánuði […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.