Gleði og góð mæting á páskaeggjaleitinni – myndir
Myndir frá páskaeggjaleit Sjálfstæðisflokksins á Skansinum í dag þar sem fjölmenni mætti og börnin nutu þess að leita að páskaeggjum í blíðskaparveðri. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Mikil þátttaka var í árlegri páskaeggjaleit Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum sem fram fór á Skansinum í dag. Mæting var góð og börn á öllum aldri nutu samveru og útivistar í blíðskaparveðri.

Leitin hófst stundvíslega klukkan 15:00, þar sem þátttakendur höfðu safnast saman við virkið á Skansinum og biðu eftir merki um að hefja leitina. Eyþór Harðarson, oddviti framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar, gaf merkið og þá dreifðu börnin sér um svæðið í leit að eggjunum.

Meira en 300 páskaegg af ýmsum stærðum og gerðum höfðu verið falin og vakti það mikla lukku. Takmörk voru sett á fjölda eggja sem hver mátti taka til að tryggja að sem flestir fengju eitthvað í sinn hlut.

Viðburðurinn markar upphaf að fleiri viðburðum á vegum Sjálfstæðisflokksins í aðdraganda komandi kosninga, en frambjóðendur flokksins komu að framkvæmd dagsins. Páskaeggjaleitin er þó fyrst og fremst hugsuð sem skemmtun fyrir fjölskyldur og líkt og í fyrra nutu börn á öllum aldri samveru og útivistar á Skansinum.

Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta fylgdist með leitinni í gegnum linsuna.

Nýjustu fréttir

Áhyggjur af fjármögnun Herjólfs og Landeyjahafnar
Boða átak vegna gáma og númerslausra bíla
Tvær ferðir til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjakonur vilja styrkja stöðu sína í þriðja sæti
Eyjamenn leika síðasta heimaleik tímabilsins í dag
Siglingar til Landeyjahafnar háðar kjöraðstæðum
Alanys semur við ÍBV til tveggja ára
Bein útsending: Staða ferðaþjónustunnar rædd við þingmenn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.