Viðvörun fyrir allt landið á annan í páskum
Skjáskot/vedur.is

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir landið allt. Austan stórhríð á mánudag og tekur viðvörunin gildi kl. 08:00 á annan í páskum og gildir fram á aðfaranótt þriðjudags kl. 04:00.

Í viðvörunarorðum segir: Gengur í austan á 18-28 m/s, hvassast syðst, en hægari vindur norðanlands fram eftir degi. Spáð er talsverðri eða mikilli snjókomu, einkum sunnan- og austantil. Hlýnar smám saman um kvöldið og fer að rigna sunnantil. Búast má við talsverðum samgöngutruflunum og versnandi akstursskilyrðum. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og fylgjast með veðurspám.

Hugleiðingar veðurfræðings

Í kvöld verður norðlæg átt 8-15 m/s á austanverðu landinu, en hægari annars staðar. Snjókoma með köflum norðan- og austantil, en stöku él á Suðvesturlandi. Hiti um eða undir frostmarki.

Norðaustan 8-15 og lítilsháttar él norðan- og austantil, en hægari og þurrt að kalla suðvestanlands. Hiti 0 til 5 stig, yfir daginn.

Gengur í austan 18-28 m/s með snjókomu á mánudag. Spáð er talsverðri eða mikilli snjókomu, skafrenningi með lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum. Samgöngutruflanir eru líklegar á meðan veðrið gengur yfir. Fólki er bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám. Hlýnar um kvöldið og fer að rigna sunnanlands.
Spá gerð: 04.04.2026 15:16. Gildir til: 06.04.2026 00:00.

Veður.is.

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.