Framboðslisti kjósenda í Eyjum
Grímur Gíslason, formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Eyjum.

Aðsend grein

Grímur Gíslason

Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar liggur nú fyrir. Raðað var í öll efstu sæti listans með prófkjöri en 12 efstu sæti listans eru byggð  niðurstöðu gríðarlega vel heppnaðs prófkjörs, þar sem nærri 1200 kjósendur í Eyjum komu að því að stilla frambjóðendum upp á listann með vali sínu í prófkjörinu.

1178 kjósendur skipuðu eiginlega kjörnefnd

Oft er kallað eftir því að persónukjör sé viðhaft í kosningum en prófkjör er ekkert annað en persónukjör og þær persónur sem þar bjóða sig fram eru kosnar beint af fólkinu sem tekur þátt með því að greiða atkvæði sitt.

Stundum er það gagnrýnt að fámennur hópur fólks innan flokka, svokölluð kjörnefnd , uppstillingarnefnd eða jafnvel elíta,  sjái um að velja og stilla upp fólki á framboðslista fyrir kosningar. Því er ekki til að heilsa varðandi uppstillingu á lista Sjálfstæðisflokksins í Eyjum fyrir komandi kosningar því í hinni eiginlegu “kjörnefnd” að þessu sinni sátu 1178 kjósendur af kjörskrá í Eyjum. Þeir sáu um það verk að raða frambjóðendum í sæti á framboðslistanum.

Einungis eitt framboð færir þetta vald til kjósenda

Sjálfstæðisflokkurinn er eini flokkurinn, eina framboðið, hér í Eyjum sem gefur bæjarbúum, almennum kjósendum, beint tækifæri til að raða upp framboðlistanum. Enginn annar flokkur eða framboð veitir kjósendum slíkt umboð til að stilla upp frambjóðendum á lista.

Allir kjósendur í Eyjum, gátu í raun tekið þátt í prófkjörinu og þannig haft áhrif á hvernig frambjóðendur myndu skipast á framboðslistann. Í heildina voru 1672 á kjörskrá, í lok kjördags, og af þeim greiddu 1178 atkvæði eða 70,5% þeirra sem á kjörskrá voru, sem er gríðarlega góð kjörsókn í prófkjöri.

Framboðslisti með þétt bakland frá kjósendum

Í lok kjördags lágu afgerandi úrslit fyrir og efstu sæti framboðslistans voru ákveðin. Kjósendur í Eyjum sáu um að stilla frambjóðendum í þessi sæti með atkvæðum sínum. Niðurstaðan var, eins og við mátti búast, sterkur framboðslista með góðri blöndu af fólki með mikla reynslu og öðru óreyndara, en allir með þétt  bakland og stuðning frá kjósendum í Eyjum í kjölfar prófkjörsins.

D-listinn fer bjartsýnn og jákvæður inn í kosningabaráttuna

Kosningabaráttan fer nú af stað og fer D-listi Sjálfstæðisflokksins bjartsýnn og jákvæður inn í þá baráttu með það að leiðarljósi að horfa til framtíðar í öflugri uppbyggingu á öllum sviðum sem koma samfélaginu í Eyjum til góða. Mörg stór verkefni bíða nýrrar bæjarstjórnar og stærstu hagsmunamálin snúa eins og oft áður að því að ná samkomulagi við ríkisvaldið svo það komi að málum eins og eðlilegt og nauðsynlegt verður að teljast.

Kostnaður vegna vatnsleiðslu eitt af stóru málunum sem bíða

Það er af mörgu að taka í stórum málum sem skipta miklu fyrir okkur íbúa í Eyjum en líklega er stærsta fjárhagslega hagsmunamál Vestmannaeyjabæjar og íbúa hér að ná samkomulagi við ríkisvaldið um kostnaðarþátttöku vegna nýrrar vatnsleiðslu sem við höfum lagt áherslu á að sé almannavarnamál.

Það verk hefur verið í vinnslu undanfarin misseri og er enn ekki lokið. Því mun skipta miklu í framhaldinu að þeir sem að því máli hafa unnið, sem og öðrum stórum hagsmunamálum, fyrir hönd Eyjamanna hafi þá þekkingu, reynslu og sambönd sem þarf  til að árangur náist.

Góð kosning veitir sterkt umboð

Kjósendur í Eyjum fengu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins að  velja það fólk sem það treystir best að leiða þessa vinnu sem og vinnu við  önnur hagsmunamál okkar Eyjamanna. Ég trúi því að kjósendur í Eyjum muni fylgja eftir þessu vali sínu á frambjóðendum á lista Sjálfstæðisflokksins með því að fylkja sér á bak við þau í komandi bæjarstjórnarkosningum og greiða þeim atkvæði sitt með því að setja X við D í kosningunum 16. maí nk.

Þannig munu kjósendur veita því fólki, sem það valdi á framboðslistann í prófkjörinu, sterkt umboð til að leiða þau mörgu og mikilvægu verkefni sem bíða nýrrar bæjarstjórnar.

 

Grímur Gíslason

Greinarhöfundur er fomaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Eyjum.

Nýjustu fréttir

Ólíklegt að höfnin opni um helgina
Stærstu viðskiptafréttir í Eyjum á næsta leiti?
Svava Tara hjá Sölku fer yfir sumartískuna 2026
Eyjan okkar
Brjóstaskimun í Eyjum
Tvö fyrirtæki frá FÍV komin í úrslit fyrirtækjasmiðju
Ómálefnaleg veiðiráðgjöf á hvölum
Við þurfum að hætta þessum bútasaumi

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.