Landsbankinn hefur nýtt heimild til að kaupa eigin hluti í bankanum og gaf hluthöfum kost á að selja hluti sína á tímabilinu 2.–13. mars 2026. Málið var tekið fyrir á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja.
Bæjarráð ræddi stöðuna og samþykkti samhljóða að selja hlut sveitarfélagsins í bankanum, sem nemur 0,02%, fáist fyrir hann ásættanlegt verð. Sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs hefur verið falið að vinna að framgangi málsins í samráði við bæjarráð.