Bæjarstjórn vill halda áfram viðræðum við ríkið
Bæjarráð ræddi samgöngumál í bæjarráði Vestmannaeyja í dag. �?ar á meðal fund með Sigurði Inga Jóhannsssyni samgönguráðherra sem fram fór í seinustu viku.
Fundin sátu bæjarfulltrúar ásamt stýrihóp um yfirtöku Vestmannaeyjabæjar á rekstri Herjólfs.
Á fundinum var rætt um mögulegt rekstrarfyrirkomulag nýrrar Vestmannaeyjaferju. Eins og komið hefur fram hefur Vestmannaeyjabær lýst sig tilbúinn til að taka við rekstri ferjunnar og þegar liggur fyrir undiritaðuð viljayfirlýsing milli Vestmannaeyjabæjar og ráðherra samgöngumála.
Bæjarráð ítrekar þá skoðun sína að breyta þurfi viðhorfi til þjónustu Vestmannaeyjaferju á þann máta að hún taki mið af þörfum samfélgsins í Vestmannaeyjum á hverjum tíma en ekki fyrirfram gefnum forsendum undirrituðum af ríkinu og hlutafélagi sem tekur að sér reksturinn. Er í því samhengi vísað til nýlegrar úttektar Rannsóknastofnunar Háskólans á Akureyri en þar kom ma. í ljós að þjónustan eins og ríkið hefur mótað hana hingað til er vægast sagt fjarri því sem heimamenn telja þörf á.
Á fundinum lýsti bæjarstjórn því að hún vildi halda áfram viðræðum við ríkið sem byggja á undirritaðri viljayfirlýsingu sem ma. gerir ráð fyrir:
· skipið verði nýtt til siglinga milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar lengur hvern sólarhring en nú er og gangi allt að 8 ferðir á dag í reglulegri áætlun þegar aðstæður krefjast.
· núverandi Herjólfur verði til reiðu sem varaskip fyrir ferjusiglingar í landinu eftir að ný ferja hefur siglingar.
· sama gjaldskrá gildi á báðum siglingaleiðum.
· núverandi fjárveiting til reksturs Herjólfs verði lögð til grundvallar nýs samnings. �?annig verði möguleg hagræðing vegna rekstrar nýrrar Vestmannaeyjaferju, nýtt til að bæta samgöngur á milli lands og Eyja.
· fram fari þarfagreining á þjónustuþörf skipsins. �?arfagreiningin taki mið af þörfum samfélagins en ekki eingöngu ámarksnýtingu.
· rekstur ferjusiglinga milli lands og Eyja sé almannaþjónusta og ekki hagnaðardrifin.
Á fundinum var einnig opnað á þann möguleika að samhljóða því að Vestmannaeyjabær taki reksturinn að sér verði einnig skoðaða að stofnað verði opinbert hlutafélag ríkis og sveitarfélags sem annist reksturinn.
�?að er mat bæjarráðs að fundurinn hafi verið uppbyggjandi enda hafi ráðherra tekið hugmyndum heimamanna vel og verið sammála bæjarstjórn um markmiðin. �?á hafi ráðherra lýst yfir vilja til að halda viðræðum við sveitarfélagið áfram og muni því boða til nýs fundar á næstu dögum.
Gjaldskrá Herjólfs
Bæjarráð lýsir yfir ánægju með þá ákvörðun valið hafi verið að lækka gjaldskrá í �?orlákshöfn nú þegar í stað þess að gera það þegar hin nýja Vestmannaeyjaferja hefur þjónustu síðsumars eins og áður hafði verið ákveðið.

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði gegn Val í lokaleik Olís deildarinnar
Enginn kemst áfram í lífinu á ljóðum einum saman
Hugmyndin að húsinu fæddist eftir samtal við vini
Vorlykt í lofti
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins lagður fyrir fulltrúaráðið
Jói Listó – Ótrúlegur ferill mikils listamanns
Toppliðin takast á í lokaleik Olísdeildarinnar
Gular viðvaranir allvíða – Suðaustanhríð á Suðurlandi

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.