Baldur siglir til Þorlákshafnar í dag
Baldur á leið frá Eyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Baldur siglir til Þorlákshafnar í dag þar sem ófært er fyrir ferjunna í Landeyjahöfn vegna aðstæðna í höfninni. Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00 og 16:00. Brottför frá Þorlákshöfn kl. 10:45 og 19:45.

Farþegar sem áttu bókað kl. 07:00, 10:00, 16:00 og 19:00 færast sjálfkrafa milli hafna, aðrir þurfa að hafa samband við skrifstofu Herjólfs til þess að færa bókun sína.  Hvað varðar siglingar á miðvikudag, verður gefin út tilkynning fyrir kl. 06:00 á miðvikudagsmorgun.

Á þessum árstíma er alltaf hætta á færslu milli hafna og því ekki æskilegt að skilja eftir farartæki í annarri hvorri höfninni. Við viljum einnig góðfúslega benda farþegum á að um borð í Baldri er ekki boðin upp á gisting, segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf.

Nýjustu fréttir

Sveiflur í veðri og ógnar brim
Gul viðvörun – Austanhríð
Kristín Klara lék í sigri Íslands á Serbíu
Þar sem andinn er góður og stemningin í klefanum frábær
Bílaumboðið Una selur XPENG bíla á Íslandi 
Árni Árnason – Þurrabúðarlíf í Eyjum um aldamótin 1900
34,8 milljónir í fjárhagsaðstoð í fyrra
Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.