Bíll valt á Stórhöfðavegi síðdegis í dag en tvennt var í bílnum. Fólkið slapp með skrámur en bílinn er talsvert skemmdur á annarri hliðinni og var fjarlægður með kranabíl. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu fór bíllinn að rása í hvassviðrinu í dag en ökumaðurinn hafði aðeins verið með bílpróf í einn dag.